Gjöfin frá Ásgeiri: „Þetta var hans draumur“

Ásgeir H. Ing­ólfs­son lést nótt­ina fyrir við­burð­inn sem hann hafði varið síð­ustu dögum lífs­ins við að skipu­leggja ásamt vinum sínum og ætt­ingjum. Nið­ur­staðan var að það væri í anda Ásgeirs að halda við­burð­inn. „Þetta var ótrú­leg stund og mikil gjöf sem hann færði okkur sem eftir stóðum, að fá að vera þarna saman á þess­ari stundu,“ segir Jón Bjarki Magússon, einn af hans nán­ustu vinum.

Gjöfin frá Ásgeiri: „Þetta var hans draumur“

Vinir og ætt­ingjar Ásgeirs H. Ing­ólfs­sonar eru ekki þau einu sem misstu mikið þegar hann féll skyndi­lega frá heldur er íslenskt menn­ing­ar­líf fátækara. Um það voru allir sam­mála sem mættu á Lífs­kvið­una, list­við­burð og mann­fagnað, sem Ásgeir var að skipu­leggja síð­ustu daga lífs síns ásamt vinum sínum og fjöl­skyldu. Hann greind­ist með krabba­mein í des­em­ber og í jan­úar fékk hann þær fregnir að meinið væri ekki tækt til með­ferðar – hann ætti aðeins vikur eða mán­uði eftir. Tíminn var skemmri en hann átt­aði sig á.

Lífs­kviðan fór fram laug­ar­dag­inn 25. jan­úar í sum­ar­húsi við Kjarna­skóg sem Ásgeir leigði af sjúkra­hús­inu á Akureyri, skóg­inn sem afi hans átti stóran þátt í að rækta upp og Ásgeir kall­aði gjarnan skóg­inn hans afa. Þangað hafði hann sótt mikið þegar hann var að alast upp á Akureyri og þegar hann var ungur maður að hugsa um hvaða leið hann vildi fara í líf­inu, og setti stefn­una á bók­mennta­fræði, skáld­skap og list­ina. 

Lést nóttina áður

Þarna ætl­aði Ásgeir að fagna list­inni og líf­inu með vinum sínum. Hann hafði hlakkað mikið til en auk þess að stefna þarna saman vinum úr ólíkum áttum víðs vegar að úr heim­inum ætl­aði Ásgeir þarna að finna far­veg fyrir arf­leifð sína – öll óklár­uðu verkin hans. En Ásgeir lifði ekki til að vera við­staddur Lífs­kvið­una. Hann lést nótt­ina áður, öllum að óvörum. 

Móðir Ásgeirs tók þessa mynd af honum fimmtu­dag­inn 23. jan­úar vegna við­tals­ins í Heim­ild­inni um Lífs­kvið­una. Hann lést aðfara­nótt 25. jan­úar.

Ásgeir var í við­tali hjá Heim­ild­inni tveimur dögum fyrr sem birt­ist í blað­inu á föstu­deg­inum þar sem hann sagð­ist auð­vitað vera „al­veg hund­fúll“ yfir því að vera að deyja en hann var harð­á­kveð­inn í einu: „Ég ætla samt að halda partí.“

Frá upp­hafi var ljóst að þeir sem kæmu á Lífs­kvið­una væru að upp­lifa sorg yfir því að Ásgeir væri dauð­vona, þrátt fyrir til­hlökk­un­ina um að hitta hann og gleð­ina yfir að verja með honum þessum ein­staka við­burði – fögn­uði í skugga dauða­dóms. En í stað þess að sorgin væri und­ir­liggj­andi þá var hún alltum­lykj­andi og umvafði allt, líka brosin og hlát­ur­inn þegar fólk rifj­aði upp góðar stundir með Ásgeiri, yfir ein­hverju frum­legu sem hann gerði eða úthugs­uðu sem hann sagði. Þarna var ekki bara fólk frá Íslandi heldur einnig fólk sem hafði komið frá Bristol, Tromsö og Prag.

„Það er eig­in­lega ótrú­legt að standa hér fyrir framan ykkur öll og sjá hvaða frá­bæra fólk Ásgeir þekkti, elskaði, dró saman og er allt komið hingað í kvöld
Jón Bjarki Magn­ús­son

Jón Bjarki Magn­ús­son, einn af nán­ustu vinum Ásgeirs, kvik­mynda­gerð­ar­maður og blaða­maður, ávarp­aði í upp­hafi þá tugi fólks sem þarna heiðr­uðu minn­ingu hans. „Kæru vinir. Þá erum við saman komin hér. Það er eig­in­lega ótrú­legt að standa hér fyrir framan ykkur öll og sjá hvaða frá­bæra fólk Ásgeir þekkti, elskaði, dró saman og er allt komið hingað í kvöld,“ sagði hann, grát­klökkur. Jón Bjarki þekkti alls ekki alla þarna en bætti við að Ásgeir hafi alltaf litið svo á að vinir hans væru vinir sínir. „Hann lang­aði svo að fá fólkið sitt saman, úr ólíkum áttum, til að eiga þessa stund og sam­ein­ast.“

Jón Bjarki ávarp­aði í upp­hafi þau sem heiðr­uðu minn­ingu Ásgeirs á Lífs­kvið­unni.

Myndir af Ásgeiri liðu yfir sjón­varps­skjá­inn í bak­grunn­inum, af honum á ýmsum tíma­punktum í líf­inu. Jón Bjarki kynnti síðan inn mynd­skeið sem hann og Haukur Már Helgason, skáld og blaða­maður, höfðu klippt saman eftir að hafa fyrir nokkru fylgt Ásgeiri eftir með kvik­mynda­vél. Ásgeir hafði sjálfur aldrei séð þetta efni klippt saman. Það hafði átt að koma honum á óvart þetta kvöld. 

Þeir vinir hans höfðu fylgt honum eftir þar sem hann bjó í Prag, en þangað flutti Ásgeir fyrir tæpum ára­tug til að geta dregið fram lífið á ódýr­ari hátt en á Íslandi og náð þannig að sinna því sem hann elskaði, menn­ing­ar­líf­inu; skrifa, lesa, rýna. Horfa á kvik­myndir, sem hann rýndi ásamt bók­mennt­unum, en þeir fylgdu honum einnig eftir á kvik­mynda­há­tíð­inni Berl­inale. Og líka þar sem hann vann sem næt­ur­vörður eitt sum­arið á Jarð­böð­unum á Mývatni þar sem Ásgeir ætl­aði að safna sér pen­ing til að lifa af yfir vet­ur­inn í Prag. Ásgeir hafði reiknað með því að geta nýtt tím­ann á næt­ur­vakt­inni til að lesa en þess í stað þurfti hann að þrífa, en setti það ekki fyrir sig. Í mynd­band­inu sást Ásgeir skúra og ræða um lífs­ins gagn og nauð­synjar. Hann ræddi til að mynda túris­mann á Íslandi, sagði und­ar­legt að hér á landi væri alltaf allur mannauð­ur­inn settur í sama brans­ann, þann sem skil­aði þjóð­inni pen­ingum í það skiptið. Túrism­inn var þó að hans mati „skárri en álverin og banka­brjál­æðið“.

Á meðan Ásgeir sást hita sér upp pasta á næt­ur­vakt­inni var búið að klippa inn upp­lestur hans á ljóði úr Fram­tíð­inni, annarri af tveimur ljóða­bókum eftir hann, ljóðið Sósan hans Alfredo. Ásgeir las, og hér er sein­asti hluti ljóðs­ins: 

„Hann sagði mér hvernig bjór­inn varð til, hvað Kafka borð­aði í kvöld­mat á sunnu­dögum, hvað ég ætti að segja við tékk­nesku stelp­urnar. En aldrei sagði hann mér hvað var í sós­unni – og ég verð að við­ur­kenna að það er lygi að hitt hafi verið  jafn merki­legt. Upp­skriftin að sós­unni hans Alfredo er lyk­ill­inn að sjálfri ham­ingj­unni, lífs­gát­unni – en lík­lega vissi Alfredo að mig lang­aði að halda áfram að leita.“

Ásgeir ástríðu­fullur uppi á hús­þaki að lesa upp úr bók.

Maður sem hægt var að tala við

Valur Gunn­ars­son, sem ásamt Ásgeiri, Jóni Bjarka og fleirum kom að skipu­lagn­ingu Lífs­kvið­unnar, tók sér stöðu við míkró­fón­inn og sagði frá því að hann hafi kynnst Ásgeiri þegar fyrsta skáld­saga Vals kom út, Konungur norð­urs­ins. „Mig grunar að hann hafi verið eini mað­ur­inn sem las hana,“ sagði Valur en eftir það tók Ásgeir við­tal við Val, og Valur komst að því að Ásgeir var „maður sem hægt var að tala við“, ekki síst eftir að hann vissi að Ásgeir hafði séð kvik­mynd­ina Russian Ark eftir Sokurov: „Ásgeir kunni reyndar ekki að meta hana en mér fannst magnað að hann hefði séð hana.“

Á veggnum yfir borð­inu með veit­ing­unum var búið að hengja upp ljós­myndir af honum frá ýmsum stöðum lífs­hlaups­ins. Á boðstólum voru veit­ingar úr ýmsum áttum, en sumar þó sér­valdar. Það var kakó, því Ásgeir vildi hafa kakó. Þarna var líka púð­ur­syk­ur­sterta því hún var í upp­á­haldi hjá Ásgeiri og það sem hann fékk sér helst í köku­boðum. Einhver hafði komið með tékk­neskan bjór því Ásgeir bjó í Tékk­landi, og annar með rauð­vín því hann hafði gjarnan skálað við Ásgeir í rauð­víni yfir góðum sam­ræðum. 

„Þetta var ótrú­leg stund og mikil gjöf sem hann færði okkur sem eftir stóðum, að fá að vera þarna saman á þess­ari stundu
Jón Bjarki Magn­ús­son

Jón Bjarki lýsir því í sam­tali við blaða­mann eftir við­burð­inn að hug­myndin að Lífs­kvið­unni hefði komið skömmu eftir að Ásgeir fékk þær fregnir að hann ætti lítið eftir. „Hann var rosa­lega ein­beittur og spenntur yfir þessu, og tal­aði við svo mikið af fólki sem hann bauð að koma. Allir voru vel­komnir,“ segir hann. Það hafi síðan verið mikið áfall þegar Ásgeir lést nótt­ina áður. Þrátt fyrir sorg­ina hafi þau öll, vinir hans og fjöl­skylda, þó ákveðið að halda Lífs­vök­una engu að síður. „Við vorum öll á því að klára þetta síð­asta verk sem hann lagði upp með,“ segir hann, en þau hafi alls ekki vitað hvort margir myndu hætta við að koma og hversu margir yrðu þarna saman við Kjarna­skóg um kvöldið. Þau eru sann­færð um að þetta hafi verið rétt ákvörðun: „Þetta var blanda af sterkum til­finn­ingum, sorg en líka gríð­ar­lega mikil ást og vænt­um­þykja. Þetta var svo skrýtið, mér fannst eins og hann væri þarna með okkur öllum,“ segir Jón Bjarki. „Þetta var ótrú­leg stund og mikil gjöf sem hann færði okkur sem eftir stóðum, að fá að vera þarna saman á þess­ari stundu.“

Arfleifðin í verkum hans

Á borðum voru ljóða­bækur Ásgeirs en einnig útprent­anir á ýmsu efni sem hann hafði skrifað í gegnum tíð­ina, klár­uðu og óklár­uðu, eins og hann hafði lagt upp með. Í við­tali við Heim­ild­ina við skipu­lagn­ing­una benti Ásgeir á að þar sem hann væri ógiftur, barn­laus og ætti ekki miklar ver­ald­legar eignir, þá væru verkin hans sú arf­leifð sem hann skilur eftir sig. „Það sem mig lang­aði að gera var að finna ljós­mæður og ljós­feður og rit­stjóra fyrir allt sem ég á, til að hjálpa mér að koma því í eitt­hvert form eða halda áfram með verkin sem ég byrj­aði á. Kannski getur ein­hver klárað skáld­sög­una sem ég er bara búinn að skrifa fyrstu tíu blað­síð­urnar af,“ sagði hann tveimur dögum áður en hann lést. 

Ásgeir bar sig vel þegar þessi mynd var tekin af honum á sjúkra­hús­inu á Akureyri snemma í jan­ú­ar­mán­uði.

Valur Gunn­ars­son segir eftir Lífs­vök­una að honum finn­ist gott að við­burð­ur­inn fór fram. „Sem hann hefði kannski ekki gert ef Ásgeir hefði farið fyrr en ekki einmitt þarna nótt­ina áður. En það sem hann vildi var að færa vini sína saman og þetta er það sem var honum mest hug­leikið síð­ustu dag­ana, að skipu­legga þetta. Þetta var hans draumur,“ segir hann.

„Hann er maður sem fórn­aði sér algjör­lega fyrir list­ina alla tíð
Valur Gunn­ars­son

Valur leggur áherslu á hversu ástríðu­fullur Ásgeir var gagn­vart list­inni. „Hann er maður sem fórn­aði sér algjör­lega fyrir list­ina alla tíð. Hann stóð alltaf með list­inni og varð eig­in­lega að flýja land til að geta lifað af þessu,“ segir hann.

Þarna var einnig varpað fram þeirri hug­mynd að koma á lagg­irnar sjóði í minn­ingu Ásgeirs sem gerði fólki kleift að starfa við menn­ing­arrýni á Íslandi, eða veita menn­ing­ar­verð­laun í hans nafni, og er ýmis vinna farin í gang til að reyna að gera þær hug­myndir að veru­leika. 

Vinir Ásgeirs í Prag, hópur ljóð­skálda og lista­manna, ætla að koma saman á laug­ar­dag, klukkan 18 á íslenskum tíma, til þess að heiðra minn­ingu góðs vinar og skáld­bróður með ljóðum, ræðum og hvers kyns list. Atburð­ur­inn ber heitið We love you Asgeir og verður streymt í beinni útsend­ingu á Zoom. Vinir og vel­unn­arar Ásgeirs í Reykja­vík hyggj­ast koma saman í Bíó Paradís af þessu til­efni til þess að fylgj­ast með streym­inu í beinni.

Skarpur menningarrýnir

Eiríkur Örn Norðdahl rit­höf­undur er á meðal þeirra sem komu á Lífs­kvið­una. Þeir Ásgeir þekkt­ust fyrst og fremst í gegnum menn­ing­ar­lífið, og hann ákvað að mæta á Lífs­vök­una vegna þeirrar virð­ingar sem hann ber fyrir Ásgeiri. „Framlag Ásgeirs til íslenskrar menn­ingar verður seint ofmetið. Hann var ein­fald­lega einn allra skarpasti, ærleg­asti og pródúk­tí­vasti menn­ing­ar­gagn­rýn­andi sem við höfum átt. Hann var sjálf­stæður í hugsun – sem er meira en að segja það í þessu litla menn­ing­ar­sam­fé­lagi þar sem allir þekkj­ast, elskast, hat­ast, skjall­ast, ótt­ast – og aldrei hræddur við að hríf­ast eða hafa orð á því sem honum þótti miður fara, og gerði oft bæði í sama text­anum.“ Eiríkur Örn seg­ist í sam­tali við Heim­ild­ina hafa verið lagður af stað til Akur­eyrar, í miðju Ísa­fjarð­ar­djúpi, þegar hann fékk þær fregnir að Ásgeir væri lát­inn. Restina af leið­inni, fimm, sex tíma leið, hafi hann keyrt í hálf­gerðu móki. „Í Guð­laugs­vík keyrði ég fram á 14 metra búr­hval, sem lá dauður einsog jar­teikn í fjör­unni. Ég staldr­aði þar heil­lengi við og ég man að það hvarfl­aði að mér að þetta hefði kvik­mynda­gagn­rýn­and­anum Ásgeiri áreið­an­lega þótt tals­vert overk­ill – og beðið leik­stjór­ann að slaka á mynd­mál­inu.“

„Framlag Ásgeirs til íslenskrar menn­ingar verður seint ofmetið
Eiríkur Örn Norðdahl

Ásgeir var sonur Hrefnu Hjálm­ars­dóttur og Ingólfs Ármanns­sonar heit­ins og systk­ini hans voru Auður H. Ing­ólfs­dóttir og Ármann Ing­ólfs­son. Hrefna, móðir hans, var á opna hús­inu sem haldið var á laug­ar­deg­inum, sam­kvæmt fyrir fram ákveð­inni dag­skrá, en treysti sér ekki til að vera um kvöldið líka. Í sam­tali við Heim­ild­ina segir hún að þau systk­ini hans hafi verið að ræða stjörnu­gjafir Ásgeirs þegar kom að bókarýni. 

„Ásgeir var ekki þekktur fyrir að gefa margar stjörnur. Það var í fyrsta skipti núna fyrir jólin sem hann gaf einni bók fimm stjörnur,“ segir hún en það var í einu af bóka­blöðum Heim­ild­ar­innar fyrir jólin sem hann gaf skáld­sög­unni Breið­þotur eftir Tómas Ævar Ólafsson fullt hús stiga. 

„Það að gefa almennt ekk­ert of margar stjörnur getur þýtt að gagn­rýn­and­inn sýnir höf­undi þá virð­ingu að lesa skrifin vel og vand­lega. Þetta hefur verið okkur umhugs­un­ar­efni,“ segir Hrefna og bætir við: „Mig langar að koma því á fram­færi hvað Heim­ildin var mik­il­vægur mið­ill fyrir hann til að koma skrifum sínum á fram­færi.“ Ásgeir hélt úti eigin vef um margra ára skeið, Menn­ing­arsmygl, en hann skrif­aði fyrir báða fyr­ir­renn­ara Heim­ild­ar­innar, Stundina og Kjarnann, auk til að mynda RÚV og Morg­un­blaðs­ins. 

Hrefna rifjar líka upp dóm sem Ásgeir skrif­aði og birt­ist nú fyrir jólin í Heim­ild­inni, um Ferðalok eftir Arnald Ind­riða­son. Í dómnum segir: „Hjúkr­un­ar­konan systir Vil­helm­ína er hins vegar bita­stæð­asta auka­per­sónan og maður hefði viljað fá miklu meira að heyra af henni, og eins eru sjúk­ling­arnir með honum í her­bergi og fólkið sem hjálpar honum á spít­al­ann for­vitni­legar auka­per­sónur sem hefði mátt vinna betur með.“

„Síðan ger­ist það bara stuttu seinna að hann á allt sitt undir hjúkr­un­ar­fólki sem sinnti honum og líkn­aði síð­ustu dag­ana. Mér fannst það svo­lítið merki­legt“
Hrefna Hjálm­ars­dóttir, móðir Ásgeirs

Hrefna segir að hún hafi hugsað til þess­ara orða nýverið: „Hann nefnir sér­stak­lega að það hefði mátt gera þeim betur skil sem hjúkr­uðu per­són­unni. Síðan ger­ist það bara stuttu seinna að hann á allt sitt undir hjúkr­un­ar­fólki sem sinnti honum og líkn­aði síð­ustu dag­ana. Mér fannst það svo­lítið merki­legt. Auka­per­sónan var í hans huga aðal­per­sóna,“ segir hún.

Táknin í hversdeginum

Lífs­vakan stóð fram undir mið­nætti og var Valur Brynjar Ant­ons­son, heim­spek­ingur og kenn­ari við Lista­há­skóla Íslands, einn þeirra sem tóku til máls. Hann tal­aði um hvernig draumar dauð­vona fólks gefi ekki til kynna að eitt­hvað hræði­legt sé að fara að ger­ast heldur að það sé aðeins lítið skref „og það sem við höfum í þessu lífi tökum við ekki með okkur í það næsta“. Hann sagði einnig að áður en fólk veit sjálft að dauð­inn nálg­ast þá viti lík­am­inn það. Stundum séu ýmis tákn í umhverf­inu sem hægt sé að lesa í, og kynnti hann því næst inn mynd­band sem hann sá á Facebook-síðu Ásgeirs, mynd­band sem hann hafði sett inn skömmu áður en hann var greindur með krabba­mein; mynd­band sem Valur sagð­ist telja sig geta fundið ákveðin skila­boð í.

Á mynd­band­inu hans Ásgeirs mátti sjá íkorna sem var að reyna að kom­ast í gegnum hlið en sama hvað hann reyndi þá komst hann ekki á milli járnriml­anna því hann hélt á ein­hverju. Fólkið í stof­unni brosti og hló að sætum íkorn­anum en síðan sló allt í einu þögn á hóp­inn; íkorn­inn sleppti því sem hann hélt á, skildi það eftir, og komst þá í gegnum hliðið. 

 „Þetta er ákveðið ljóð,“ sagði Valur, á þessum við­burði sem Ásgeir skipu­lagði til að fagna með vinum sínum áður en hann dó. Því síð­asta sem hann skildi eftir sig.

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár