Ásgeir greindist með banvænt krabbamein: „Ég ætla samt að halda partí“

Ásgeir H. Ing­ólfs­son fékk nýverið dauða­dóm, eins og hann orðar það. Krabba­meinið sem hann greind­ist með er ekki tækt til með­ferðar. Ljóð­skáldið og blaða­mað­ur­inn býður því til Lífs­kviðu; mann­fagn­aðar og list­við­burðar á Götu sól­ar­innar við Kjarna­skóg. Ásgeir frá­biður sér orðið æðru­leysi í þessu sam­hengi, því auð­vitað sé hann „alveg hund­fúll.“

Ásgeir greindist með banvænt krabbamein: „Ég ætla samt að halda partí“
Í sól­stof­unni hjá mömmu Ásgeir með bók­ina Gólem og slær á gong. Á kerta­stjak­anum stendur Lífið er ævin­týri. Mynd: Hrefna Hjálmarsdóttir

„Labbaði út með dauða­dóm á bak­inu síð­asta þriðju­dag. Er búinn að fá nið­ur­stöður varð­andi krabbann. Örið á vél­ind­anu hefur búið til svo mikið mein á lifr­inni að þeir segja þetta ekki með­ferð­ar­tækt. Vikur, mögu­lega mán­uðir eftir.“

Þetta skrifar Ásgeir H. Ing­ólfs­son, skáld og blaða­maður, þar sem hann boðar til við­burðar sem hann kallar Lífs­kviðu og er ætlað að fagna líf­inu, dauð­anum, eft­ir­líf­inu, öðrum víddum og almennri ást og vin­skap. 

Ein­hverjum kann að koma orðið „æðru­leysi“ í hug þegar maður sem hefur nýlega fengið þær fregnir að hann eigi ekki mikið eftir ákveður að bjóða til veislu, en Ásgeir frá­biður sér það orð í sam­hengi við hans upp­lifun og sýn á stöð­una. „Mér er illa við þetta orð. Kannski hefur það átt vel við í for­tíð­inni þegar við vorum varn­ar­laus­ari skepnur. Vandinn við þetta orð er að það er oft notað á und­ar­legan hátt. Það er stutt síðan margir sögðu að við þyrftum að takast á við afleið­ingar lofts­lags­ham­fara af æðru­leysi. Nei, við hefðum bara átt að vera reið og gera eitt­hvað í því,“ segir hann.

„Mig lang­aði ekki að fara í ein­hvern æðru­leys­is­gír gagn­vart þessu og hugsa að svona sé nú bara lífið, því auð­vitað er ég alveg hund­fúll að fá ekki nokkra ára­tugi í við­bót og ætla ekk­ert að breiða yfir það. Hins vegar þýðir það ekki að ég ætli að láta mér leið­ast og leggj­ast í kör,“ segir Ásgeir. 

Raunverulegu verðmætin

Hann hefur lengi verið búsettur í Prag, þar sem hann er með íbúð, en er nú kom­inn heim til mömmu á Akureyri. „Ég er ekki ferða­fær en nú er kannski síð­asti séns að hitta fólkið mitt; vini og fjöl­skyldu. Ég hef búið víða og fólkið mitt þekkir ekki endi­lega hvað annað, en mig lang­aði að koma þessu fólki saman á einn stað. Venju­lega myndi ég bara drífa mig til Kaup­manna­hafnar ef ég vildi hitta vin minn sem býr þar, en nú þarf fólk að gjöra svo vel að koma til Akur­eyrar ef það vill hitta mig,“ segir hann. 

„Það sem mig lang­aði að gera var að finna ljós­mæður og ljós­feður og rit­stjóra fyrir allt sem ég á

Ásgeir bendir á að hann sé ógiftur, barn­laus og eigi engar eignir. „Þegar ég heyri fyrst orðið krabba­mein, að ég sé með krabba­mein, þá eru engin börn sem ég þarf að hafa áhyggjur af og það er eng­inn arfur sem ég þarf að skipta. Það sem ég á eftir eru öll mín óklár­uðu verk; þau sem ég er kom­inn áleiðis með og þau sem eru enn á byrj­un­ar­stigi,“ segir hann.

Það er því ákveðin heim­speki sem liggur að baki Lífs­kvið­unni sem hann býður til á laug­ar­dag við Kjarna­skóg. „Ég held að við séum allt of mörg þar að hugsa, þegar við fáum að vita að við erum að fara að deyja, að við eigum ekk­ert meira eftir til að gefa. Það er kannski rétt miðað við þann strúktúr sem við höfum komið okkur upp í kap­ít­al­ism­anum þar sem það að deyja þýðir, jú, að fólk syrgir og allt það, en að fólk gerir erfða­skrá og er að hugsa um þá pen­inga sem það á.

Fyrir mörg okkar eru mestu verð­mætin hins vegar bundin í tölvum, stíla­bókum; í tölv­unni eigum við myndir og mynd­bönd, texta og ljóð, upp­skriftir og tón­list, alls konar bara eftir áhuga­sviði fólks. Kannski getur ein­hver farið í þessi gögn síðar en kannski ekki.

Það sem mig lang­aði að gera var að finna ljós­mæður og ljós­feður og rit­stjóra fyrir allt sem ég á, til að hjálpa mér að koma því í eitt­hvert form eða halda áfram með verkin sem ég byrj­aði á. Kannski getur ein­hver klárað skáld­sög­una sem ég er bara búinn að skrifa fyrstu tíu blað­síð­urnar af.“

Ásgeir ástríðu­fullur uppi á hús­þaki að lesa upp úr bók.

Lífs­kviðan er því fögn­uður sköp­unar þar sem Ásgeir mun deila sínum verkum, og því sem komið er af þeim, en þar verður einnig fjöldi ann­arra lista­manna sem ætla að lesa upp ljóð, flytja tón­list, sýna mynd­list.  

Steinar Bragi rit­höf­undur er einn þeirra fjöl­mörgu sem hefur hjálpað Ásgeiri að skipu­leggja við­burð­inn og velur Ásgeir að sitja fyrir á mynd sem fylgir þess­ari grein með bók Steinars Braga í hönd, Gólem. Sjálfur sigr­að­ist Steinar Bragi ungur á ill­vígu krabba­meini. Bókin er saga úr dystópískri fram­tíð, um unga konu sem hefur það að atvinnu að deyja, en nafnið vísar einnig til Tékk­lands, þar sem Ásgeir hefur verið búsettur.

Í Tékk­landi er Gólem þjóð­sögu­leg vera sem hefur oft verið inn­blástur lista­manna þar sem hún er notuð sem tákn­mynd fyrir sköpun manns­ins og far­vegur spurn­inga um ábyrgð á eigin gjörðum. 

Ásgeir ber sig vel á sjúkra­hús­inu á Akureyri fyrr í þessum mán­uði.

Vildi ekki skilning

Ásgeir segir að árið 2025 hafi í raun byrjað hjá honum um miðjan nóv­em­ber 2024 þegar hann hras­aði við að labba niður lágan úti­stiga í Tallin þar sem hann var á ferða­lagi. Hann hark­aði af sér verk­inn eftir fallið og fór í bíó en þar sem verk­ur­inn varð þrá­látur grun­aði hann að rif­bein hefði brákast við að detta og ákvað að leita til læknis. Eftir röntgen­mynda­töku kom í ljós að lifrin var sködduð en eitt­hvað meira var að, sem lækn­arnir átt­uðu sig ekki almenni­lega á. Svarið kom síðar, eftir mun fleiri rann­sóknir: Krabba­mein.

Hann segir að lækn­arnir hafi reynt að vera skiln­ings­ríkir en það hafi ekki verið það sem hann þurfti á að halda: „Ég fór bara í sur­vi­val mode. Ég vildi vita tíma­lín­una og hvað ég gæti gert í stöð­unni.“ Þarna var ekki orðið ljóst að staðan væri jafn­al­var­leg og hún er í raun. Ásgeir skrif­aði á Facebook-síð­una sína um miðjan des­em­ber: „Svo er bara að losna við þetta naut­heimska krabba­mein og fara að gera eitt­hvað af viti.“

„Þá komu tárin

Um tíma velti hann fyrir sér að vera áfram í Prag en á end­anum komu móðir hans og systir út, vörðu með honum jól­unum og síðan fóru þau öll saman heim til Íslands og norður á Akureyri. Ekkert pláss hafi verið fyrir annað en praktík þegar hann fékk krabba­meins­grein­ingu frá lækn­unum. „Ég vildi bara vita sem mest. Síðan flutti ég heim og tal­aði við mömmu. Þá komu tárin. Það var gott að gráta saman.“

Kannski hafi hann heldur ekki leyft sér fyrr að upp­lifa slíkar til­finn­ingar. „Síðan átt­aði ég mig á því að það er ekk­ert nota­legt að vera einn á nótt­unni,“ og sam­þykkti hann að flytja aftur heim. 

Óþægilega skýr niðurstaða

Eftir frek­ari rann­sóknir segir Ásgeir að nið­ur­staðan sé að vonin um að losna við krabba­meinið sé ekki lengur raun­hæf. „Þetta er það mikið af mein­vörpum á lifr­inni að lækn­arnir segja fá ef nokkur dæmi séu um að með­ferð dugi til. Lækn­ir­inn sem ég tal­aði við á mið­viku­dag var mjög opinn með að það væru lík­lega bara vikur eða mán­uðir eftir.“

Sem leik­maður áttar hann sig ekki almenni­lega á því hvort það er stutt eða langt síðan hann fékk fyrst að vita af krabba­mein­inu. „Það er svo mikil bið í þessu; þú ert að bíða eftir upp­lýs­ingum, um hvar krabb­inn er, hann gat verið um allt. Ég vissi ekk­ert hvað yrði. Síðan var nið­ur­staðan allt í einu óþægi­lega skýr.“

Ásgeir segir bæði erfitt að vita ekki nóg og geta haldið í von­ina, og svo að fá að vita hversu svört staðan er. „Það er erfitt að vita ekk­ert. Núna get ég þó gert öðru­vísi plön en þegar ég hélt að það væri hægt að skera mig upp og þá yrði ég góður. Það er allt öðru­vísi að vita að það er ekk­ert hægt að gera. Á end­anum er það auð­vitað verra. Þótt óvissan sé slæm þá er samt skárra að upp­lifa óvissu með þokka­legri von.“ Nú sé vonin ekki lengur til staðar.

„Ég túlka þetta sem ein­hvers konar reiði, svona Rage Against The Machine: Ég ætla samt að halda partí

Þrátt fyrir að ein­hver von felist í heit­inu Lífs­kviða þá er það ekki til­finn­ingin sem Ásgeir fann þegar hann hóf að skipu­leggja hana. „Ég túlka þetta sem ein­hvers konar reiði, svona Rage Against The Machine: Ég ætla samt að halda partí.“

Partíið er í húsi sem hann leigði af sjúkra­hús­inu á Akureyri, húsi sem stendur sjúk­lingum til boða að leigja. Fyrst hafi hann reiknað með nokkrum hræðum en nú búi hann við þann lúx­us­vanda að kannski verði ekki pláss fyrir alla, en Ásgeir segir öllum vel­komið að mæta í partíið – líka fólk sem hann þekkir ekki neitt.

Það verður opið hús á Götu sól­ar­innar númer 6 milli klukkan 14 og 17 á laug­ar­dag. Formleg dag­skrá hefst síðan klukkan 19, þar sem ljóð, ræður, tón­list og hvað sem fólki dettur í hug ræður ríkjum. „Ég veit í raun ekki hversu margir mæta en ég hef smá áhyggjur af pláss­inu og er búinn að gúggla hvernig sé best að byggja snjó­hús. Það er nægur snjór þarna í kring.“

Kjósa
61
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MPH
    Marinó P Hafstein skrifaði
    Ásgeir farðu á strangt Ketofæði. Það sveltir krabbaneinsfrumurnar sem nærst helst á kolvetni ( glucosa ).
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár