Er tortryggilegt að eftirlitsskip frá ESB sé í Reykjavíkurhöfn?

Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son, formað­ur Mið­flokks­ins, seg­ir skip frá ESB „mætt í Reykja­vík­ur­höfn að kíkja í pakk­ann“. Fiski­stofa og Land­helg­is­gæsl­an segja skip­ið koma reglu­lega til lands­ins en það sinn­ir veiði­eft­ir­liti sam­kvæmt al­þjóða­samn­ing­um sem Ís­land er að­ili að.

Er tortryggilegt að eftirlitsskip frá ESB sé í Reykjavíkurhöfn?
Ocean Protector Skip á vegum EFCA sinnir reglubundnu eftirliti á Norrænum hafsvæðum. Mynd: b'EFCA'

„Þegar ég sá fyrst mynd af þessu skipi á netinu velti ég fyrir mér hvort það væri gervigreind,“ skrifaði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, í færslum á samfélagsmiðlunum Facebook og X á sunnudag sem hafa síðan fengið hundruð „like“-viðbragða. „En þarna er skipið, mætt í Reykjavíkurhöfn að kíkja í pakkann.“

Með færslunni fylgdu myndir af skipinu Ocean Protector, merktu „EU fishery inspection“ og merki Evrópusambandsins.

Myndir af skipinu hafa farið í dreifingu víðar á samfélagsmiðlum með aðdróttunum um að vera þess á Íslandi hafi eitthvað með mögulega aðildarumsókn Íslands að ESB að gera.

Samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu er það vel þekkt að skip eins og Ocean Protector, sem er skráð í Portúgal en er á vegum EFCA, Fiskveiðieftirlitsstofnunar ESB, komi við á Íslandi. Skipið er eitt af þeim sem sinna eftirliti á norrænum hafsvæðum sem alþjóðlegir samningar gilda um en fyrir stoppinu geta verið margar ástæður, til dæmis að taka …

Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÓÁS
    Ólöf Ágústína Stefánsdóttir skrifaði
    Þessi áróður hans og flokksmeðlima er óþolandi. Getum við ekki farið fram á málefnalegar umræður og að tiltölulega rétt sé farið með því sem er verið að varpa fram. Alvarlegt að rúv hafi verið með svona hræðilegt Silfur síðasta sunnudag. Það hvernig SD fékk að vaða uppi og trufla meðþátttakendur á ekki að eiga sér stað. Spurning hvort eigi að hleypa honum að borðinu með þessa hegðun.
    2
  • Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Greinilega vill enginn missa af sólmyrkvanum.
    0
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Dr. Sigmundur Davíð fær taugaáfall :-)
    2
  • ÓRÁ
    Óli Rúnar Ástþórsson skrifaði
    Það er líka nokkur fjöldi ferðamanna sem er að koma frá Evrópu.
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár