Kertafleytingar fara fram víða um land á fimmtudagskvöld til minningar um kjarnorkuárásirnar á Japan í Seinni heimsstyrjöldinni
„Árið 1945 vörpuðu Bandaríkjamenn kjarnorkusprengjum á japönsku borgirnar Hírósíma og Nagasakí,“ segir í tilkynningu um viðburðina. „Þar með komst veröldin í kynni við háskalegustu vopn sem mannkynið hefur skapað og hefur ógnin um beitingu þeirra vomað yfir til þessa dags. Sjaldan hefur verið unnið jafn ötullega að framleiðslu kjarnorkuvopna og nú um stundir, á sama tíma og flestum sáttmálum sem settu þeim skorður hefur verið sagt upp eða þeir fallið úr gildi. Kjarnorkuvopn eru lifandi og sífelld ógn.“
Kertafleytingarnar hafa farið fram árlega síðan 1985 til að minnast fórnarlambanna og leggja áherslu á kröfuna um heim án kjarnorkuvopna. „Fyrsta fleytingin var á Reykjavíkurtjörn en í gegnum tíðina hafa fleiri staðir bæst í hópinn. Í ár verður fleytt á sex stöðum að kvöldi fimmtudagsins 6. ágúst. Þar munu friðarsinnar koma saman og unn verður …

















































Athugasemdir