Ákærður fyrir að nauðga 14 konum

Lög­regla fékk ábend­ingu um að 68 ára gam­all karl­mað­ur væri grun­að­ur raðnauðg­ari. Við hús­leit fund­ust mynd­skeið af hon­um nauðga kon­um sem hann hafði byrl­að ólyfjan. Hann hef­ur ver­ið ákærð­ur fyr­ir brot gegn 14 kon­um, en alls hafa 58 kon­ur ver­ið nefnd­ar í tengsl­um við mál­ið.

Ákærður fyrir að nauðga 14 konum
Berlín Fólk á förnum vegi í Berlín. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint. Mynd: Shutterstock

68 ára gamall maður frá Berlín hefur verið ákærður fyrir að byrla 14 konum ólyfjan, nauðga þeim og taka verknaðinn upp, að sögn þýskra saksóknara. Konunum kynntist hann í gegnum stefnumótaöpp.

Ekkert fórnarlambanna mundi eftir meintum brotum, en þau komust upp þegar lögreglan gerði húsleit í íbúð hins grunaða og lagði hald á minniskubba sem innihéldu „fjölmörg myndskeið af kynferðisbrotum,“ að sögn saksóknara. 

„Hinum ákærða er gefið að sök hafa byrlað konunum svefnlyf ásamt áfengi og síðan nauðgað þeim,“ sagði í yfirlýsingu frá saksóknaraembættinu í Berlín. 

„Hann er sagður hafa kynnst konunum í gegnum stefnumótavefi á netinu.“

58 konur nefndar

Alls hafa 58 konur verið nefndar í tengslum við meint brot mannsins, en ákærurnar sem lagðar hafa verið fram til þessa varða 22 nauðganir gegn 14 konum, að sögn saksóknara.

Yfirvöld fengu ábendingu um málið frá lögreglunni í Neðra-Saxlandi sem var að rannsaka svipuð brot sem annar maður hafði …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár