„Hringið bjöllunum“: Íbúar lýsa flóttanum undan mannskæðum gróðureldum á Spáni

Flest­ir sem lét­ust í skógar­eld­um á Spáni voru ferða­menn eða inn­flytj­end­ur sem höfðu sest að á svæð­inu í leit að frið­sælu lífi. Minnst tólf lét­ust á flótta und­an eld­tung­un­um, en þeg­ar eld­ur­inn nálg­að­ist þorp­ið Bed­ar fékk einn bæj­ar­full­trú­inn ör­vænt­ing­ar­full fyr­ir­mæli frá bæj­ar­stjór­an­um: Hlauptu í kirkj­una og hringdu bjöll­un­um til að vara íbúa við.

„Hringið bjöllunum“: Íbúar lýsa flóttanum undan mannskæðum gróðureldum á Spáni

Þegar eldtungurnar nálguðust spænska þorpið Bedar fékk Manoli Ramos fyrirmæli frá bæjarstjóranum sem einkenndust af örvæntingu: hlauptu í kirkjuna og hringdu bjöllunum til að vara íbúa við yfirvofandi hættu.

„Við hringdum bjöllunum mörgum sinnum svo fólk vissi af þessu,“ sagði hinn 72 ára gamli bæjarfulltrúi í Bedar við AFP í nærliggjandi bæ, Los Gallardos, þar sem hún leitaði skjóls eftir að eldurinn braust út á fimmtudag.

Tólf manns létust eftir að hafa lokast inni í ökutækjum og þegar þeir reyndu að flýja fótgangandi – flestir þeirra útlendingar, að sögn yfirvalda.

Eldurinn hefur farið yfir meira en 6.000 hektara lands og lagt í rúst svæði sem var friðsælt athvarf fyrir erlenda íbúa, sérstaklega Breta sem komu til að setjast í helgan stein eða eyða fríum sínum meðal grænna hæða nálægt Miðjarðarhafsströnd Spánar.

Margir bjuggu í einangruðum húsum fyrir utan þorpið, í leit að næði og ró, en það gæti hafa …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
5
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár