Reyndu að flýja eldinn gangandi

Ferða­menn láta lífið í skóg­ar­eldum á Spáni. Sumir lögðu fót­gang­andi á flótta en aðrir lok­uð­ust inni í bíl og brunnu inni. Hita­bylgja sem liggur yfir land­inu skapar kjörað­stæður fyrir skóg­ar­elda sem reyn­ast erf­iðir viður­eignar. Aldrei hefur eins umfangs­mikil við­bragðs­á­ætlun verið í gildi og nú í sumar.

Reyndu að flýja eldinn gangandi

Að minnsta kosti ell­efu manns hafa látið lífið í skóg­ar­eldum sem geisuðu um ferða­manna­svæði í Andalúsíu á Suður-Spáni. Sum fórn­ar­lambanna urðu inn­lyksa í log­andi bif­reiðum en önnur lét­ust þegar þau reyndu að flýja eld­inn gang­andi.

Yfirvöld segja að margir þeirra sem lét­ust í eld­inum, sem kvikn­aði í gær og lagði skóga og víð­áttu­mikið kjarr­lendi í rúst á Los Gall­ar­dos-svæð­inu, séu taldir vera erlendir rík­is­borg­arar. Enn er leitað að 19 manns sem saknað er.

Spánn hefur und­an­farna daga glímt við háan hita sem skapar kjörað­stæður fyrir hraða útbreiðslu gróð­ur­elda.

Forseti hér­aðs­stjórnar Andalúsíu, Juan Manuel Moreno Bonilla, sagði að fjórir þeirra sem lét­ust hefðu verið í bif­reið með stýrið hægra megin. „Þeir virð­ast hafa verið breskir rík­is­borg­arar og brunnu til bana inni í bílnum,“ sagði hann í við­tali við spænskt útvarp.

Mínútu þögn

Filippus VI Spán­ar­kon­ungur, Letizia drottn­ing og dætur þeirra tvær minnt­ust fórn­ar­lambanna með …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár