Krefjast þess að Meta breyti „ávana- og fíknarmyndandi hönnun“ Facebook og Instagram.

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins seg­ir að Meta hafi ekki brugð­ist við upp­lýs­ing­um um tíma sem börn verja á öpp­un­um á næt­urn­ar, hvernig Reels og Stories geti leitt til áráttu­kenndr­ar notk­un­ar og hvernig efni sem sýnt er á grund­velli reikni­rita geti leitt ung­linga að sí­fellt öfga­fyllra efni.

Krefjast þess að Meta breyti „ávana- og fíknarmyndandi hönnun“ Facebook og Instagram.

Meta verður að breyta „ávana- og fíknarmyndandi hönnun“ Facebook og Instagram, ella á fyrirtækið yfir höfði sér háar sektir, varaði Evrópusambandið við í dag. 

ESB sakar bandaríska tæknirisann um að hafa ekki dregið nægilega úr þeirri áhættu sem samfélagsmiðlarnir skapa notendum, sérstaklega börnum og viðkvæmum fullorðnum, vegna eiginleika sem eru hannaðir til að halda fólki lengur inni á Facebook og Instagram.

Sérstakar áhyggjur beinast að eiginleikum á borð við endalaust flettifæði (infinite scroll), mjög sérsniðin efnisstreymi og sjálfvirka spilun myndbanda.

„Vernd líkamlegrar og andlegrar heilsu Evrópubúa verður að vera forgangsmál hjá samfélagsmiðlum,“ sagði Henna Virkkunen, framkvæmdastjóri ESB í tæknimálum, í yfirlýsingu.

Auka þrýsting á stórfyrirtæki

Evrópusambandið hefur á undanförnum mánuðum aukið þrýsting sinn á stór tæknifyrirtæki um að vernda notendur betur á netinu, sérstaklega börn.

Í bráðabirgðaniðurstöðu sem birt var í dag sagði framkvæmdastjórn ESB að hún teldi að „Meta þurfi að gera breytingar á hönnun bæði Instagram og …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
5
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár