Farage segir af sér og býður sig aftur fram

Nig­el Fara­ge, leið­togi breska Um­bóta­flokks­ins, hef­ur sagt af sér. Ný­lega komst upp um margra millj­óna gjaf­ir sem hann hafði þeg­ið frá auð­mönn­um. Farga­ge ætl­ar að bjóða sig fram á ný og still­ir auka­kosn­ing­un­um sem af­sögn­in leið­ir af sér sem átök milli al­menn­ings og valda­kerf­is­ins.

Farage segir af sér og býður sig aftur fram

Breski stjórnmálamaðurinn Nigel Farage, leiðtogi hins hægrisinnaða Umbótaflokks, tilkynnti óvænt í dag að hann myndi segja af sér þingmennsku. Hann ætlar að bjóða sig fram í aukakosningum um sætið, sem fram fara vegna afsagnar hans.

Tilkynningin kom í kjölfar margra vikna rannsóknar á fjármálum hans. Farage, sem er þekktur fyrir hlutverk sitt í að sannfæra Breta um að yfirgefa Evrópusambandið, hefur verið undir smásjá vegna meintra óuppgefinna gjafa.

„Ég hef ákveðið að íbúar Clacton eigi að dæma um gjörðir mínar,“ sagði hann og vísaði þar til kjördæmisins í suðausturhluta Englands sem hann hefur verið fulltrúi fyrir í tvö ár. „Þetta verða aukakosningar þar sem almenningur tekst á við valdakerfið,“ bætti hann við í sjónvarpsyfirlýsingu.

Segist ekki hafa gert neitt rangt

Farage hefur neitað að hafa gert nokkuð rangt, en tilraunir hans til að verja fjármál sín í viðtölum hafa aðeins hellt olíu á eldinn, á sama tíma og hann …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár