Fjölskyldusameiningar helst frá Víetnam, Filippseyjum og Bandaríkjunum

Mann­eskja sem kom til Íslands á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar síð­ustu fimm ár er lík­leg­ust til að vera víetnömsk kona sem er maki íbúa á Íslandi. Undir 1 pró­sent voru fjar­skyld­ari en maki, barn eða for­eldri við­kom­andi.

Fjölskyldusameiningar helst frá Víetnam, Filippseyjum og Bandaríkjunum

Aðeins 0,8 pró­sent þeirra sem fengu dval­ar­leyfi á Íslandi á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar síð­ustu fimm ár voru ekki makar, börn eða for­eldrar íbúa á Íslandi, eða 48 manns.

Þetta má sjá á upp­lýs­ingum frá Útlend­inga­stofnun sem fram koma í svari Þor­bjargar Sigríðar Gunn­laugs­dóttur dóms­mála­ráð­herra við skrif­legri fyr­ir­spurn Nönnu Mar­grétar Gunn­laugs­dóttur, þing­manns Mið­flokks­ins.

Nær öll þau sem fengu dval­ar­leyfi á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar voru makar eða börn íslensks eða nor­ræns rík­is­borg­ara með fasta búsetu á Íslandi eða útlend­ings með dval­ar­leyfi. 3244 makar og 2278 börn voru í hópi þeirra 5894 sem fengu dval­ar­leyfi frá 2021 til 2025 en aðeins 326 voru for­eldrar við­kom­andi og aðrir ætt­ingjar 48 tals­ins, eða 0,8 pró­sent af heild­inni.

Í svar­inu er hóp­ur­inn einnig brot­inn niður eftir löndum. 755 manns komu frá Víetnam, 536 frá Fil­ipps­eyjum og 452 frá Banda­ríkj­unum. 346 komu frá Palest­ínu en um helm­ingur þeirra kom árið 2024 þegar inn­rás Ísraels á Gazasvæðið …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár