Aðeins 0,8 prósent þeirra sem fengu dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar síðustu fimm ár voru ekki makar, börn eða foreldrar íbúa á Íslandi, eða 48 manns.
Þetta má sjá á upplýsingum frá Útlendingastofnun sem fram koma í svari Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra við skriflegri fyrirspurn Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur, þingmanns Miðflokksins.
Nær öll þau sem fengu dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar voru makar eða börn íslensks eða norræns ríkisborgara með fasta búsetu á Íslandi eða útlendings með dvalarleyfi. 3244 makar og 2278 börn voru í hópi þeirra 5894 sem fengu dvalarleyfi frá 2021 til 2025 en aðeins 326 voru foreldrar viðkomandi og aðrir ættingjar 48 talsins, eða 0,8 prósent af heildinni.
Í svarinu er hópurinn einnig brotinn niður eftir löndum. 755 manns komu frá Víetnam, 536 frá Filippseyjum og 452 frá Bandaríkjunum. 346 komu frá Palestínu en um helmingur þeirra kom árið 2024 þegar innrás Ísraels á Gazasvæðið stóð í hámæli. …

















































Athugasemdir