„Hann er ekki Messías“

Andy Burnham, sem fékk við­ur­nefnið „kon­ungur norð­urs­ins“ sem borg­ar­stjóri Manchester, virð­ist standa á þrös­k­uldi þess að verða næsti leið­togi Verka­manna­flokks­ins og næsti for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Þetta er þriðja atlagan að for­manns­stólnum og að hans sögn „síð­asta tæki­færið“ til að breyta Verka­manna­flokknum. Nú vinnur hann að því að róa fjár­festa. En hver er þessi maður sem var fagnað svo inni­lega af sam­flokks­mönnum þegar hann sór emb­ætt­is­eið sem þing­maður?

Andy Burnham virð­ist standa á þrös­k­uldi þess að verða næsti leið­togi Verka­manna­flokks­ins og næsti for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Nú vinnur hann að því að róa fjár­festa sem ótt­ast að rík­is­út­gjöld og skuldir muni aukast undir hans stjórn.

Sem borg­ar­stjóri Manchester hlaut hann við­ur­nefnið „kon­ungur norð­urs­ins“, en gaf borg­ar­stjóra­stól­inn eftir með því að taka sæti á breska þing­inu í auka­kosn­ingum.

Eftir að hann hafði svarið eið sem þing­maður heils­aði hann stuðn­ings­mönnum sínum í Westminster Hall með hnef­ann á lofti og tók sjálfs­mynd fyrir framan hóp um 200 þing­manna Verka­manna­flokks­ins. Honum var vel tekið af sam­flokks­mönnum sínum sem fögn­uðu með honum. Þeirra á meðal var Wes Streeting, fyrr­ver­andi ráð­herra, sem var framan af tal­inn helsti keppi­nautur Burnham um for­sæt­is­ráð­herra­emb­ættið.

Sjálfs­myndAndy Burnham tók þessa sjálfs­mynd með þing­mönnum Verka­manna­flokks­ins eftir að hann sór eið sem þing­maður.

Á þing­inu heyrð­ist einn þing­maður hrópa …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár