Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja

Lánið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Steinunn Guð­munds­dóttir veittu börnum sínum til að kaupa nærri helm­ings hlut í Samherja af þeim hefur verið gert upp. Börnin, þau Baldvin, for­stjóri Samherja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðnir með­eig­endur for­eldra sinna í félög­unum sem lán­uðu þeim fyrir kaup­unum. Sam­þykktir félags­ins tryggja þeim fastar arð­greiðslur úr K&B á hverju ári.

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
Lán­veit­endur Samkvæmt til­kynn­ingu til fyr­ir­tækja­skrár lán­uðu Þor­steinn Már og Helga börnum sínum millj­arða til að kaupa Sam­herja­hlut þeirra. Nú hefur það lán verið gert upp, með óvenju­legum hætti.

Selj­enda­lán sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Steinunn Guð­munds­dóttir veittu börnum sínum árið 2020 fyrir kaupum á hlut þeirra í útgerð­ar­veld­inu Samherja – þegar fram fóru ein umfangs­mestu kyn­slóða­skipti sem orðið höfðu í íslenska kvóta­kerf­inu – hefur verið greitt upp. Það var gert með því að breyta 80 millj­óna evra láni í nýtt hlutafé, en ekki með pen­inga­greiðslu.

Þetta sýna árs­reikn­ingar félags­ins K&B ehf., sem heldur utan um eign­ar­hlut systk­in­anna Kötlu og Baldvins Þor­steins­barna, og eign­ar­halds­fé­lag­anna Steins og 600, sem bæði eru í eigu fjöl­skyld­unnar, sem og önnur gögn sem lögð hafa verið fram hjá yfir­völdum.

K&B á tæpan helm­ing af öllu útgefnu hlutafé í Samherja hf, sem er eitt stærsta útgerð­ar­fé­lag lands­ins, auk þess sem Baldvin tók við for­stjóra­stöð­unni í útgerð­inni af pabba sínum, Þor­steini, á síð­asta ári. 

Rétt­indin sem fylgja nýju bréf­unum sem félög Þor­steins og Helgu fengu sem greiðslu fyrir selj­enda­lánið tryggir hand­höfum þeirra …

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Maður hefur heyrt því fleykt að íslendingar virðist mjög húsbændhollir. (Húsbóndi í merkingunni sá sem er duglegastur að nýta sér Ríkið)
    0
  • GRR
    Gísli Ragnar Ragnarsson skrifaði
    Þessi fjölskylda hirðir stóran hluta rentunnar af auðlindinni sem samkvæmt lögum er i þjóðareign.
    Hér er fjallað um aðra fjölskyldu sem er i sömu sporum:
    https://heimildin.is/grein/26707/milljarda-fjarfestingar-gudbjargar-sem-ekki-sjast-i-skyrslunni/

    Þegar núverandi kvótakerfi var komið á, á sínum tíma, var nígeríska leiðin valin af íslenskum stjórnvöldum þegar sú norska var fær og hefði verið sú eðlilega ef hagsmunir heildarinnar hefðu verið hafðir í fyrirrúmi.
    Síðan hefur svo sem lítið verið gert til að leiðrétta þetta óréttlæti, því miður. Smáviðleitni í fyrra en betur má ef duga skal.
    En það sem e.t.v. er furðulegast, flestum virðist nákvæmlega sama? Þannig blasir það að minnsta kosti við manni.
    14
  • Bergur Sigmundsson skrifaði
    Svona sukk og svindl hringl er þetta fólk að passa uppá með því vera á móti Evrópusambandinu,þar er svona ekki hægt
    5
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Hvernig myndi ESB koma í veg fyrir þetta? Vinsamlegast útskýrðu það skilmerkilega.
      -1
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Mammon lætur ekki að sér hæða.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár