Banvæn hitabylgja í Evrópu: Fjörtíu drukknað í Frakklandi

Banvæn hita­bylgja gengur yfir Evrópu. Á tæpri viku hafa fjör­tíu drukknað í Frakk­landi, aðal­lega ungt fólk. Þá fund­ust tvö lítil börn látin í bíl fjöl­skyld­unnar. For­sæt­is­ráð­herr­ann, Sebast­ian Lecornu, lýsir hinum látnu sem fórn­ar­lömbum kreppu sem heim­ur­inn stendur frammi fyrir.

Banvæn hitabylgja í Evrópu: Fjörtíu drukknað í Frakklandi

Síð­ast­liðin nótt var sú heitasta frá upp­hafi mæl­inga í Frakk­landi. Alls hafa 40 drukknað á síð­ustu fimm dögum, eða frá 18. júní, á meðan hita­bylgja gengur yfir landið. Á meðal hinna látnu er aðal­lega ungt fólk, segir for­sæt­is­ráð­herr­ann, Sebast­ian Lecornu.

Þá fund­ust tvö börn, tveggja og fjög­urra ára gömul, látin í bíl fjöl­skyld­unnar í suð­aust­ur­hluta Frakk­lands í gær, þegar hit­inn var í hámarki, að sögn sak­sókn­ara.

Daginn áður lét­ust þrír aldr­aðir ein­stak­lingar á heim­ili sínu í Gironde vegna hit­ans.

Á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Pean Nursing Home í París hafa starfs­menn gripið til sér­stakra ráð­staf­ana til að vernda íbú­ana. 

„Það er ekki nóg að setja vatns­glas fyrir framan fólk og segja því að drekka. Það þarf að tryggja að það geri það í raun,“ sagði hjúkr­un­ar­for­stjór­inn Badra Hamadi.

Nýtt hitamet annað árið í röð

Rauð hita­við­vörun nær til 54 hér­aða á meg­in­landi Frakk­lands og hefur áhrif á um 39 millj­ónir íbúa.

Hita­metið í Frakk­landi var aftur slegið. Meðaltal dags- og næt­ur­hita náði 29,2°C nú í júní og sló fyrra met sem sett var þann 30. júní á síð­asta ári.

Samkvæmt veð­ur­stof­unni Météo-France var síð­ast­liðin nótt sú heitasta sem mælst hefur í Frakk­landi frá árinu 1947. Lands­með­al­tal hita­mæl­inga, sem byggir á 30 veð­ur­stöðum víðs vegar um landið, var 21,6°C. Aðeins nokkur ár eru síðan fyrra metið var sett, í júlí 2019. Þá mæld­ist næt­ur­hit­inn 21,4°C.

Hita­bylgjan hefur raskað dag­legu lífi og leitt til þess að yfir 1.350 skólum var lokað og lestar­ferðum hefur verið frestað. Yfirvöld í París hafa varað við því að sam­göngu­kerfið verði undir miklu álagi vegna hita­bylgj­unnar. „Járn­braut­ar­teinar þola ekki hita­stig yfir 50 gráður,“ sagði Valérie Pécresse, for­seti hér­aðs­ráðs Île-de-France. Hvatti hún fólk til að fresta ferða­lögum ef mögu­legt væri og vinna heiman frá sér, sér­stak­lega við­kvæma hópa.

Í suð­vest­ur­hluta Frakk­lands stöðv­aði kjarn­orku­ver einn af kjarnakljúfum sínum vegna þess að kæli­vatn úr ánni var orðið of heitt og fór yfir örygg­is­mörkin, 28°C.

For­sæt­is­ráð­herr­ann boð­aði til neyð­ar­fundar í morgun vegna ástands­ins.

Fyrstu fórnarlömbin

Lýsti for­sæt­is­ráð­herra Frakk­lands drukkn­un­unum sem „hörmu­legri plágu“.

„Þau eru fyrstu fórn­ar­lömb þeirrar kreppu sem við stöndum frammi fyrir“
Sebast­ian Lecornu
For­sæt­is­ráð­herra Frakk­lands

„Nýjustu tölur sem okkur hafa borist sýna 40 dauðs­föll frá 18. júní, aðal­lega á meðal ungs fólks,“ sagði Lecornu á neyð­ar­fund­inum. „Þau eru fyrstu fórn­ar­lömb þeirrar kreppu sem við stöndum frammi fyrir.“

Fjöldi þeirra sem hefur drukknað um og eftir helg­ina er kom­inn upp í 20, segir íþrótta- og æsku­lýðs­mála­ráð­herr­ann, Marina Ferrari, um leið og hún hvetur fólk sem kælir sig niður í vötnum og sjó til að fara var­lega.

Loftlagsskjól opnað á Spáni

Á Spáni hófst hita­bylgjan á sunnu­dag og ráð­gert er að hún vari að minnsta kosti fram á fimmtu­dag. Vís­inda­menn telja Spán vera eitt þeirra Evr­ópu­landa sem eru einna ber­skjöld­uð­ust fyrir áhrifum loft­lags­breyt­inga. Á síð­ustu árum hafa hita­bylgjur orðið tíð­ari og erf­ið­ari viður­eignar. 

Í gær mæld­ist hiti 40°C eða meira á 101 af 828 veð­ur­stöðum sem spænska veð­ur­stofan AEMET rekur.

Í Madríd, þar sem hit­inn fór í 40°C á mánu­dag, opn­aði borg­ar­stjórnin sér­stakt „lofts­lags­skjól“ fyrir heim­il­is­laust fólk og aðra við­kvæma hópa.

Reyndi að finna hvíld frá hitanum 

Veð­ur­stofan í Portúgal telur að þriðju­dag­ur­inn verði heit­asti dagur hita­bylgj­unnar þar í landi.

Á Spáni tók gildi hita­við­vörun sem nær yfir nán­ast allt landið. Hæsta við­vör­un­ar­stig gildir á ákveðnum svæðum á suður- og norð­ur­hluta lands­ins.

Á 30 veð­ur­stöðvum fór hit­inn ekki niður fyrir 25°C í nótt, sem þykir und­ir­strika hversu öflug hita­bylgjan er. Við strönd­ina nálægt Almería í suð­ur­hluta Andalúsíu hefur hit­inn ekki farið niður fyrir 30°C þrjár nætur í röð. 

Rauð við­vörun gildir fyrir svæði í kringum borg­ina Crodoba í suðri, borg­ina Bilbao í norðri og hluta af hér­að­inu Cantabria. Spáð er allt að 40°C í skugga á sumum svæðum í Baska­landi við landa­mærin að Frakk­landi, þar sem svo mik­ill hiti er sjald­gæfur. 

„Ég veit ekki einu sinni hvað hit­inn er mik­ill, en þetta er skelfi­legt... og ég er frá Mexíkó“
Clarisa Aris­mendi
Læknir á Spáni

Í Cordoba reyndi lækn­ir­inn Clarisa Aris­mendi að finna sér stund­ar­hvíld frá hit­anum. „Ég er að borða ís því þetta er hræði­legt. Það er eins og hörm­ung. Ég veit ekki einu sinni hvað hit­inn er mik­ill, en þetta er skelfi­legt... og ég er frá Mexíkó,“ sagði hún.

Stór svæði á mið- og norð­ur­hluta Spánar eru undir app­el­sínugulri við­vörun, en ann­ars staðar er gul við­vörun í gildi á flestum stöðum. Aðeins strand­svæði sleppa við hita­við­vörun. 

Nýtir morgnanna vel 

Í Barcelona, þar sem hit­inn hefur hækkað án þess þó að ná þeim öfgum sem sést hafa ann­ars staðar á Spáni, þurfti hinn 76 ára gamli Jose Farre að nýta sval­ari morg­un­stund­irnar fyrir inn­kaupa­ferð.

„Ég er með hjarta­sjúk­dóm, er með syk­ur­sýki og finn mjög mikið fyrir þessu,“ sagði hann og útskýrði að hækk­andi hita­stig hefði gert honum erf­ið­ara fyrir að sofa og jafn­vel anda.

„Hitinn hefur hækkað um nokkrar gráður frá því ég var ungur og fram til dags­ins í dag. En það sem truflar mann mest er rak­inn,“ bætti hann við.

Bann við flugeldum og blysum

Ótti við gróð­ur­elda og önnur slys hefur leitt til tak­mark­ana á hátíð­ar­höldum í Kata­lóníu á þriðju­dag, sem venju­lega eru haldin með flug­eldum og varð­eldum.

Yfirvöld hafa hvatt fólk til sér­stakrar var­úðar og bannað er að skjóta upp flug­eldum eða kasta log­andi hlutum innan 500 metra frá skóg­lendi.

„Hitinn hefur hækkað um nokkrar gráður frá því ég var ungur og fram til dags­ins í dag“
Jose Farre
Eldri borg­ari á Spáni

Þá hefur íbúum og ferða­mönnum verið ráð­lagt að halda sig á svölum töðum, tak­marka lík­am­lega áreynslu utandyra, drekka reglu­lega vatn og gæta sér­stak­lega að börnum, öldruðum og öðrum við­kvæmum hópum. 

Viðvörunarstigi lýst á Ítalíu

Á Ítalíu hefur heil­brigð­is­ráðu­neytið lýst yfir hæsta við­vör­un­ar­stigi vegna hita í 15 borgum, þar á meðal Mílanó og Róm. Gert er ráð fyrir að borg­unum muni fjölga áður en yfir lýkur.

Á þessum svæðum eru íbúar hvattir til þess að halda sig inn­an­dyra yfir heitasta tíma dags­ins, borða léttan mat og kæla sig reglu­lega með köldu vatni.

Vís­inda­menn vara við því að end­ur­teknar hita­bylgjur séu skýr vís­bend­ing um hlýnun jarðar og að þær verði tíð­ari, lengri og harð­ari á kom­andi árum.

Fimm létust í Þýskalandi

Í Þýska­landi lét­ust fimm nú um helg­ina, en þar hefur banaslysum sem eiga sér stað við sund einnig fjölgað.

Tveir menn, 20 og 22 ára, drukkn­uðu í vötnum í Bæj­ara­landi og 79 ára gömul kona lést í Eystra­salti. Önnur ban­væn sunds­lys urðu í vötnum í Brand­en­borg og Norð­ur­rín-Vest­fa­líu.

Á flug­vell­inum í Frank­furt þurftu nokkrir far­þegar að fá aðhlynn­ingu vegna hitaslags eftir að flug­vél þeirra hafði staðið á flug­hlað­inu í meira en klukku­stund fyrir brott­för.

Belgía gæti slegið hitamet

Í Belgíu er spáð því að hita­bylgjan muni standa yfir í viku, með „hæsta hita sem nokkru sinni hefur mælst“, að sögn veð­ur­fræð­ings­ins David Dehenauw hjá belgísku veð­ur­stof­unni.

Sumir skólar hafa stytt skóla­dag­inn niður í hálfan dag.

Sjaldgæf hitaviðvörun í Bretlandi

Aðeins nokkrum vikum eftir að Bretland sló hita­met fyrir maí­mánuð gaf veð­ur­stofan út hæstu við­vörun fyrir ákveðin svæði á mið- og suð­ur­hluta Englands. Það hefur aðeins einu sinni verið gert áður.

„Við búumst við alvar­legum og víð­tækum áhrifum af þess­ari hita­bylgju, með heilsu­fars­legum afleið­ingum fyrir marga, ekki aðeins þá sem venju­lega telj­ast við­kvæmir fyrir hita,“ sagði starfs­maður veð­ur­stof­unnar, Mark Sidaway.

Við­vör­unin gildir fyrir mið­viku­dag og fimmtu­dag og nær meðal ann­ars til London, Birming­ham og Bath.

Fjöl­margir skólar hafa lokað starf­semi sinni og verða lok­aðir næstu daga. „Fæstar bygg­ingar okkar er hægt að kæla nægi­lega og lítið er um skugga utandyra,“ útskýrði starfs­maður skóla í Buckinghamshire.

„Það er alvar­legt að sjá hita­stig sem þetta í Bret­landi í júní“
Stephen Belcher
Vís­inda­maður í Bret­landi

Járn­brauta­fyr­ir­tækið Network Rail hvatti far­þega til að ferð­ast aðeins ef brýna nauð­syn bæri til næstu daga. 

Lest­ar­línan sem tengir norð­aust­ur­hluta Englands við London gaf jafn­vel út ráð­legg­ingu um að fólk skyldi alls ekki ferð­ast nema nauð­syn bæri til.

Alvarlegt að sjá þetta 

Veð­ur­stofa Bret­lands segir lík­legt að núver­andi jún­í­hita­met Bret­lands, 35,6°C frá árinu 1976, verði slegið. Talið er að hita­met gæti fallið strax í dag, þegar hit­inn gæti náð 37°C í suð­ur­hluta lands­ins. Á næstu dögum gæti hit­inn farið upp í 40°C í skugga á sumum svæðum, sem væri for­dæma­laust svo snemma sum­ars.

Veð­ur­stofan var­aði einnig við svoköll­uðum „hita­belt­isnóttum“, þar sem hit­inn helst óvenju­hár alla nótt­ina.

„Það er alvar­legt að sjá hita­stig sem þetta í Bret­landi í júní,“ sagði aðal­vís­inda­maður veð­ur­stof­unnar, Stephen Belcher „Lofts­lags­breyt­ingar af manna­völdum hafa gert atburði sem þessa lík­legri og öfga­kennd­ari,“ bætti hann við.

Sér­fræð­ingar hafa ítrekað varað bresk stjórn­völd við því að landið sé illa und­ir­búið fyrir sífellt heit­ari sumur.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár