„20 mínútur yfir fjögur? Þessu trúði ég ekki“

Alþingi hefur verið slitið og fundum frestað til 8. sept­em­ber. Mörg mál klár­uð­ust á loka­metr­unum á meðan önnur þurfa að bíða.

„20 mínútur yfir fjögur? Þessu trúði ég ekki“
Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir Forseti Alþingis sleit síð­asta fundi Alþingis fyrir sum­ar­frí rétt í þessu.

Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, for­seti Alþingis, sleit þing­fundi rétt í þessu og er fundum frestað til 8. sept­em­ber.

Virtist hún nokkuð hissa á því hversu vel gekk að klára þing­störfin í dag. „20 mín­útur yfir fjögur?“ heyrð­ist Þórunn segja í útsend­ingu frá Alþingi eftir að hún sleit fundi. „Þessu trúði ég ekki.“

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagð­ist mundu sakna margra, ef ekki allra þing­manna, í sumar en sagði þing­heim hafa gott af því að vera nokkrar vikur í sundur. Skömmu áður hafði Stefán Vagn Stef­áns­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks, flutt gam­an­sama ræðu við mikla kátínu við­staddra.

Frumvarp þing­manna Mið­flokks­ins og ann­arra þess efnis að lengja gild­is­tíma öku­skír­teina eldri borg­ara var sam­þykkt og varð að lögum. Að til­lögu alls­herjar- og mennta­mála­nefndar var hópi manns veittur rík­is­borg­ara­réttur.

Stuðn­ingur við einka­rekna fjöl­miðla var lög­festur sem og frum­varp vel­ferð­ar­nefndar um mats­verð fast­eigna í Grinda­vík. Frumvarp umhverfis- orku- og lofts­lags­mála­ráð­herra um með­ferð virkj­un­ar­hug­mynda í …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár