Borgin vill ekki hjólabyggð og leggur til einkaframtakið

Starfs­hópur Reykja­vík­ur­borgar segir það laga­lega flókið og kostn­að­ar­samt að bjóða upp á þjón­ustu við íbúa í hjól­hýsum á Sæv­ar­höfða. Þá sé mögu­lega heppi­legra að einka­fram­takið taki við bolt­anum.

Borgin vill ekki hjólabyggð og leggur til einkaframtakið
Hjól­hýsa­byggð Hópurinn hefur verið á svæð­inu und­an­farin ár. Nú stendur til að slíta sam­komu­lagi við fyrri borg­ar­stjóra vegna kostn­aðar. Mynd: Golli

Starfs­hópur Reykja­vík­ur­borgar telur að ýmis­legt í núver­andi lagaum­hverfi geri það í raun ólög­legt að koma upp svæði fyrir hjól­hýsi með var­an­lega búsetu í huga. Þetta kemur fram í umsögn frá umhverfis- og skipu­lags­sviði (USK) vegna afnota­samn­ings um borg­ar­land í Gufunesi undir hjóla­byggð eins og það er kallað. Ein af nið­ur­stöðum starfs­hóps um málið er að mögu­lega væri heppi­legra ef einka­fram­takið byði upp á svæði með þjón­ustu fyrir þennan hóp. Kostn­aður vegna byggð­ar­innar yrði lík­lega á bil­inu 50 til 100 millj­ónir fyrir útsvars­greið­endur verði samn­ing­ur­inn efndur við hjóla­búa.

Nokkuð var tek­ist á um hjól­hýsa­byggð á Sæv­ar­höfða á fundi borg­ar­ráðs á fimmtu­dag, eftir að málið var fært úr trún­að­ar­bók borg­ar­ráðs. Lagt er til að leigu­samn­ingi við hjóla­búa verði sagt upp á Gufunesi í ljósi umsagn­ar­innar, og er það borg­ar­stjóri sem lagði slíkt til á fundi borg­ar­stjórnar.

Minni­hlut­inn er ósáttur og gagn­rýnir áform borg­ar­innar í bókun við málið, þar sem sagði: …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    Hvað er hjólabyggð? Samanber fyrirsögn og millifyrirsagnir í þessari grein.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár