Segir útreikninga Morgunblaðsins út í hött

Hag­fræð­ingar segja full­yrð­ingar Morg­un­blaðs­ins um að mat­ar­k­arfan sé 40 pró­sent ódýr­ari en í ESB ekki stand­ast skoðun. Kaup­máttur og verð­lag séu hvor sinn hlut­ur­inn og það geti verið flókið að bera það saman milli landa.

Segir útreikninga Morgunblaðsins út í hött
Morg­un­blaðið Það vakti mikla athygli þegar Morg­un­blaðið hélt því fram að mat­vöru­karfan á Íslandi væri 40 pró­sent ódýr­ari hér en í aðild­ar­ríkjum ESB. Þetta stenst illa skoðun að mati hag­fræð­inga. Mynd: Bára Huld Beck

Hag­fræð­ingar segja full­yrð­ingu Morg­un­blaðs­ins um að mat­ar­k­arfan sé 40 pró­sent ódýr­ari á Íslandi en í aðild­ar­ríkjum ESB ann­ars vegar vill­andi og hins vegar „út í hött“.

Formaður Neyt­enda­sam­tak­anna kann­ast ekki við að mat­ar­k­arfan hafi lækkað um 40 pró­sent á Íslandi. Það lýsi í það minnsta ekki upp­lifun skjól­stæð­inga sam­tak­anna.

Mat­ar­k­arfan 40% ódýr­ari á Íslandi?Fjöl­margir ráku lík­lega upp stór augu þegar þeir lásu þessa full­yrð­ingu Morg­un­blaðs­ins.

Morg­un­blaðið birti umdeilda frétt síð­ustu helgi þar sem því var haldið fram fullum fetum að mat­ar­k­arfan á Íslandi væri 40 pró­sent ódýr­ari en í aðild­ar­löndum Evr­ópu­sam­bands­ins. Blaða­maður Morg­un­blaðs­ins bar þar saman kaup­mátt Íslend­inga og verð­lag í hlut­falli við ráð­stöf­un­ar­tekjur á mann eins og það var orðað í frétt blaðs­ins. Heim­ildin leit­aði til hag­fræð­inga og fleiri sér­fræð­inga til þess að kanna sann­leiks­gildi fréttar Morg­un­blaðs­ins, sem við­mæl­endur töldu að minnsta kosti vill­andi, í versta falli algjör­lega ranga.

…

Kjósa
50
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (8)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Samanburðurinn í Mbl við meðaltal ESB er mjög villandi. Norðurlöndin eru þau lönd sem við berum okkur oftast saman við, t.d. hvað varðar samanburð á kaupmætti ráðstöfunartekna.
    Í Mbl er vísað til meðaltals ESB sem er út í hött því innan ESB eru fjölmörg bláfátæk Austur-Evrópulönd og samanburður við þau því lítt áhugaverður.
    Ef við skoðum Norðurlöndin þá er kaupmáttur ráðstöfunartekna á svipuðu róli í löndunum, ívið hærri í Noregi út af olíuauðnum og ívið lægri í Finnlandi, m.a. vegna öldrunar þjóðarinnar og mikilla áhrifa Úkraínustríðsins á efnahag.
    Það sem heldur Íslandi uppi í samanburðinum er m.a. lýðfræðilegs eðlis, aldurssamsetning þjóðar, þ.e.a.s. lágur meðalaldur og því fáir á eftirlaunum ennþá og því tengt atvinnuþátttaka og lægri kostnaður við heilbrigðiskerfi og öldrunarþjónustu. Því lægri skattar og af því leiðir hærri ráðstöfunartekjur. Einnig langur vinnutími, mikil atvinnuþátttaka eldri starfsmanna og há atvinnuþátttaka kvenna. Allt leiðir þetta til hærri ráðstöfunartekna á mann á Íslandi. Til lengri tíma má ætla að staðan hér jafnist milli Norðurlanda og þá dragist Ísland, að öðru jöfnu, aftur úr frændþjóðunum á Norðurlöndum í kaupmætti. Hröð íbúafjölgun á Íslandi, einkum tengd láglaunaatvinnuvegum, hefur leitt til hratt vaxandi innviðaskulda og hægt á vexti þjóðarframleiðslu á mann. Þessa innviðaskuld þarf að greiða á endanum gegnum hærri skatta og það leiðir þannig til lægri ráðstöfunartekna þegar fram í sækir.
    En hér er bara hálf sagan sögð því kaupmáttur er ekki það sama og kaupmáttur. Horfum aðeins til ungs fólks á Norðurlöndum sem er á fyrstu búskaparárum. Gefum okkur ungt fólk á Norðurlöndunum sem öll eru með sömu ráðstöfunartekjur og sama kaupmátt. Þá lifa ungmennin hjá frændþjóðum okkar í miklum vellystingum á meðan íslensku ungmennin lepja flest dauðann úr skel þegar mánaðarmót nálgast, þ.e.a.s. þau sem ekki eiga vel efnaða og góðviljaða foreldra. Ástæðan er sú að húsnæðiskostnaður, einkum vaxtagreiðslur eða húsaleiga, er um tvöfalt hærri hér en hjá frændþjóðunum og étur upp nær allan kaupmáttinn.
    Er þetta ekki sá samanburður Íslands við kaupmátt annarra þjóða sem skiptir mestu máli, hvort ungt fólk eigi fyrir mat í lok mánaðar?
    0
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    "Segir heimildir Heimildarinnar rýrar"
    https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/06/23/segir_heimildir_heimildarinnar_ryrar/
    "Matvara á Íslandi er ódýr miðað við tekjur okkar"
    https://konradgudjons.substack.com/p/matvara-a-islandi-er-odyr-mia-vi
    0
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Winston Churchill á að hafa sagt "ég trúi engri tölfræði sem ég hef ekki falsað sjálfur".
    Það er varasamt að nota meðaltöl við útreikninga vegna þess að fáein stór frávik geta skekt meðaltalið. Matvælakostnaður er svipaður hjá þeim efnameiri og þeim efnaminni en mismunur á tekjum getur verið margfaldur. Ef við höldum að tekjur séu svipaðar á Íslandi og annars staðar í ESB og hugsum ekkert um tekjudreifinguna getur alveg komið út að matvælakosnaður hljóti að vera minni. Þetta kalla þjóðverjar "Milchmädchenreichnug" mjólkurstúlknareikning því að menn gerðu ekki ráð fyrir að stúlkur sem selja mjólk hafi fengið einhveja menntun.
    0
  • JBG
    Jóhannes Bragi Gíslason skrifaði
    Útreikningur Hagstofunnar á launasummu (staðgreiðsluskyld laun) frá mars 2020 til mars 2026 gefur um um 70 % hækkun sem gerir ca. 9,3% á ári. það er án efa ástæða fyrir auknum kaupmætti og hæstu launum í heimi. Á sama tíma á engin framleiðni aukning sér stað m.v. landsframleiðslu, skv. Samtökum Iðnaðarins. sem þeir rekja m.a. til styttri vinnuviku. Ljóst er að lítil innistæða er fyrir þessum launahækkunun og engan vegin hægt að nota þær til að fullyrða um lágt vöruverð á matarkörfu á Íslandi.
    2
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Hvers vegna eru allir útreikningar hjá Morgunblaðinu svona svakalega hagstæðir íslendingum , en þegar þeir sem eru að gera tilboð í íbúðir á Íslandi, þá eru allar reiknisstærðir þeim í óhag ?
    2
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Íslenskir bankar virðast ekki eiga í vandræðum með að reikna út hversu hátt hlutfall af ráðstöfunartekjum heimila tiltekinn útgjaldaliður er (þ.e. afborganir af húsnæðislánum).

    Kannski væri hægt að fá þá til að yfirfara slíka útreikninga á matarkörfunni?

    Varla vantar verðupplýsingar, þær eru til hjá hagstofum viðkomandi ríkja.

    En réttar staðreyndir henta ekki alltaf öllum pólitískum sjónarmiðum...
    0
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Ekki lýgur mogginn
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár