Óviðunandi staða í málefnum margra hópa barna

Inn­leið­ing „far­sæld­ar­lag­anna“ hef­ur ekki heppn­ast sem skyldi að mati Rík­is­end­ur­skoð­un­ar. Börn með fjöl­þætt­an vanda, börn sem glíma við vímu­efna­vanda, fóst­ur­börn og börn með fötl­un njóti ekki nægi­legra góðr­ar þjón­ustu. Beinn ár­ang­ur af lög­un­um sé óljós enn sem kom­ið er.

Óviðunandi staða í málefnum margra hópa barna
Börn Farsældarlögin svokölluðu ná til barna undir 18 ára aldri. Mynd: Shutterstock

Ríkisendurskoðun beinir því til mennta- og menningarmálaráðuneytisins að bæta þurfi yfirsýn um stöðu barna og kortleggja hvað þurfi til að auka farsæld barna.

Þetta kemur fram í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar um innleiðingu og framkvæmd farsældarlaganna svokölluðu, sem kynnt var fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í dag.

„Mennta- og barnamálaráðuneytið tekur undir að bæta þurfi heildaryfirsýn um stöðu barna og hvaða hindranir standa í vegi fyrir því að börn og foreldrar fái þjónustu við hæfi þegar hennar er þörf,“ segir í viðbrögðum ráðuneytisins við skýrslunni. 

Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, eða farsældarlögin eins og þau voru kölluð, voru samþykkt 2021 og tóku gildi 1. janúar 2022. „Þeim er ætlað að stuðla að farsæld barna og er meginmarkmiðið að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri og samfelldri þjónustu við hæfi án hindrana,“ segir í skýrslunni. „Lögin kveða á um að við framkvæmd þeirra skuli …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár