Sjálfstæðisflokkur stærstur í síðustu könnun fyrir kosningar

Sjálf­stæð­is­flokkur mælist stærstur í Reykja­vík. Mið­flokkur fengi tvo full­trúa og gæti því ekki verið þriðja hjólið í meiri­hluta með Framsókn og Sjálf­stæð­is­flokki.

Sjálfstæðisflokkur stærstur í síðustu könnun fyrir kosningar
Á toppnum Sjálf­stæð­is­flokkur Hildar Björns­dóttur má telj­ast nokkuð örugg­lega stærsti flokk­ur­inn í Reykja­vík í dag. Fram­sókn­ar­flokkur Einars virð­ist að sama skapi örugg­lega inni í borg­ar­stjórn, sem hefur verið tví­sýnt í könn­unum und­an­far­inna miss­era. Mynd: Golli

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist stærstur í nýrri könnun Maskínu sem birt­ist seint í gær­kvöldi. Hann mælist með 31,3 pró­senta fylgi.

Það er nákvæm­lega sama fylgi og Gallup mældi flokk­inn með í sinni könnun, sem birt­ist líka í gær. Flokk­ur­inn fengi 8 full­trúa í borg­ar­stjórn, verði þetta nið­ur­stöður kosn­ing­anna í dag.

Sam­fylk­ing mælist næst­stærst hjá Maskínu, með 19,4 pró­senta fylgi, Viðreisn þar á eftir með 12 pró­sent og Vinstrið með 11 pró­sent. Í sætum talið fengi Sam­fylk­ing 5 full­trúa, en Viðreisn og Vinstrið 3 hvor.

Mið­flokk­ur­inn mælist með 9,8 pró­sent og 2 full­trúa og Framsókn 6,1 pró­sent og einn full­trúa.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn mælist með síð­asta full­trú­ann í borg­ar­stjórn, með 4,5 pró­senta fylgi. Aðrir flokkar næðu ekki kjöri og myndu Flokkur fólks­ins og Píratar því hverfa úr borg­ar­stjórn. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár