Skelfileg aðkoma eftir innbrot í svínabú: Gyltur með áverka og dauðir grísir

„Þegar starfs­fólk kom til vinnu um morg­un­inn blasti við skelfi­leg sjón. Dýrin voru aug­ljós­lega í miklu upp­námi og í óreið­unni höfðu þau slasað bæði sig sjálf og hvert annað. Sér­stak­lega þung­bært var að finna dauða grísi eftir nótt­ina,“ segir Geir Geirsson for­stjóri.

Skelfileg aðkoma eftir innbrot í svínabú: Gyltur með áverka og dauðir grísir

Brotist var inn í svínabú Stjörnu­gríss í Brimnesi á Kjal­ar­nesi aðfar­arnótt mánu­dags. Tvær hurðir voru brotnar upp og miklar skemmdir unnar á skrif­stofum og svína­húsum. Inn­rétt­ingar voru rifnar upp, stíur opn­aðar og hurðir skildar eftir opnar, með þeim afleið­ingum að dýrin gengu laus um húsin og út á tún í myrkri og slag­viðri. 

Í yfir­lýs­ingu frá Stjörnu­grís segir afleið­ing­arnar alvar­legar fyrir dýrin. Tíu smá­grísir hafi drep­ist í ringu­reið­inni sem skap­að­ist við inn­brotið. „Til að mynda Þurfti að aflífa einn vegna kjálka­brots. Þá eru fjöl­margar gyltur með áverka, meðal ann­ars haltar og rispaðar, og eitt fóst­ur­lát hefur þegar orðið,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. 

For­stjóri Stjörnu­gríss, Geir Gunnar Geirsson, lýsir aðstæðum á vett­vangi: „Þegar starfs­fólk kom til vinnu um morg­un­inn blasti við skelfi­leg sjón. Dýrin voru aug­ljós­lega í miklu upp­námi og í óreið­unni höfðu þau slasað bæði sig sjálf og hvert annað. Sér­stak­lega þung­bært var að finna dauða grísi eftir nótt­ina.“

Hafa áhyggjur af frekari afleiðingum

Starfs­fólk varð fyrir áfalli við að sjá vinnu­stað­inn og dýrin í þessu ástandi og var sent heim. Gert er ráð fyrir því að frek­ari afleið­ingar muni birt­ast á næstu dögum og vikum, meðal ann­ars vegna streitu, mjólk­ur­missis hjá gyltum og mögu­legra fóst­ur­láta. 

Þá segir að brotið hafi verið gegn smit­vörnum bús­ins. Dýr úr mis­mun­andi hópum hafi bland­ast saman og sum farið út fyrir húsa­kynni bús­ins. 

„Umfang og fram­kvæmd verkn­að­ar­ins benda til þess að fleiri en einn hafi staðið að inn­brot­inu. Af verksum­merkjum má ráða að brotið hafi verið framið undir yfir­skyni dýra­vel­ferðar, þrátt fyrir að afleið­ingar gjörð­anna hafi valdið dýr­unum veru­legu tjóni og þján­ingum.“

Kært til lögreglu

Málið hefur verið kært til lög­reglu sem hefur málið til rann­sóknar. Að auki hafa Mat­væla­stofnun og emb­ætti yfir­dýra­læknis verið upp­lýst um atvikið. 

„Þetta er ekki aðeins tölu­vert eigna­tjón heldur fyrst og fremst mjög alvar­legt mál fyrir dýrin sjálf. Að ráð­ast inn að næt­ur­lagi, þegar dýrin eru í hvíld, valda hávaða, óreiðu og reka þau um húsin hafði veru­leg áhrif á líðan þeirra og öryggi,“ segir Geir. 

„Mjög alvar­legt er þegar ró raskast hjá gyltum með got. Spena­grísir eru afar við­kvæmir fyrstu dag­ana og ef þeir týna móður sinni eða lenda hjá rangri gyltu getur hún hafnað þeim. Þá fá þeir hvorki næga nær­ingu né vernd og geta veikst eða drep­ist á skömmum tíma.“

Ætla að bæta aðbúnað dýranna 

For­stjór­inn áréttar síðan að Stjörnu­grís hafi unnið að und­ir­bún­ingi umfangs­mik­illa fram­kvæmda með það að mark­miði að bæta aðbúnað dýr­anna. Enn bíða þó ákveðin mál úrlausnar stjórn­valda áður en hægt verði að ráð­ast að fullu í þær fram­kvæmdir. 

Hvetur hann inn­brots­þjóf­ana til að gefa sig fram: „Við viljum jafn­framt hvetja þá sem stóðu að þessum verkn­aði til að gefa sig fram og axla ábyrgð á gjörðum sínum. Við skiljum vel að fólk hafi áhuga á og áhyggjur af dýra­vel­ferð og það er af hinu góða að vel­ferð dýra sé í hávegum höfð í sam­fé­lag­inu. Það er eitt að mót­mæla eða hafa skoð­anir á búrekstri, en allt annað að valda dýrum þján­ingu, meiðslum og dauða, raska ró þeirra og eyði­leggja umhverfi þeirra í nafni mál­staðar síns.

Ég tel að allir hljóti að for­dæma verknað af þessu tagi. Mótmæli eiga aldrei að bitna á dýr­unum sjálfum.“

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár