Engin gögn studdu málatilbúnað Páls

Páll Stein­gríms­son skip­stjóri sak­aði Þóru Arn­órs­dótt­ur um að hafa brot­ið gegn sér og dró hana fyr­ir dóm. Dóm­ari sagði eng­in gögn liggja því til stað­fest­ing­ar. „Mála­til­bún­að­ur stefn­anda hér er með öllu órök­studd­ur.“ Hon­um var gert að greiða máls­kostn­að Þóru og Rík­is­út­varps­ins.

Engin gögn studdu málatilbúnað Páls

Páll Steingrímsson skipstjóri krafðist milljóna í miskabætur vegna meintra brota starfsmanna RÚV gegn friðhelgi hans en hafði ekki erindi sem erfiði. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Ríkisútvarpið og Þóru Arnórsdóttur, fyrrverandi ritstjóra Kveiks, af öllum kröfum skipstjórans.

Með málið til rannsóknar í þrjú ár

Málið má rekja til umfjöllunar Stundarinnar og Kjarnans, forvera Heimildarinnar, um hóp fólks sem starfaði fyrir Samherja og kallaði sig skæruliðadeildina. Hópurinn lagði á ráðin um hvernig hægt væri að hafa áhrif á málsmeðferð yfirvalda vegna mútugreiðslna Samherja í Namibíu og almenningsálitið, meðal annars með því að vega að æru uppljóstrara og blaðamanna.

Í kjölfarið leitaði Páll til lögreglu vegna brota gegn friðhelgi einkalífs.

Lögreglan á Norðurlandi eystra hóf rannsókn á málinu í maí 2021. Sex blaðamenn fengu stöðu sakbornings. Blaðamennirnir störfuðu á Stundinni, Kjarnanum og RÚV. Í þrjú ár voru blaðamennirnir með stöðu sakbornings, þar til málið var fellt niður.

Lögreglan taldi ekki hægt að sanna …

Kjósa
38
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Hver skyldi nu greiða fyrir lögmannskostnað Páls?
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Í minningu afastráksins
3
Viðtal

Í minn­ingu afastráks­ins

Gunn­ar Rand­vers­son starf­aði í ára­tugi sem tón­list­ar­kenn­ari, hef­ur skrif­að ljóð og smá­sagna­safn. Áföll­in hafa mót­að líf hans. Ell­efu ára gam­all horfði hann á föð­ur sinn deyja, 21 árs missti hann móð­ur sína og fyr­ir þrem­ur ár­um lést fjög­urra ára gam­all dótt­ur­son­ur hans. Í ljóða­bók­inni Hvernig er sökn­uð­ur á lit­inn? eru ljóð skrif­uð í minn­ingu litla drengs­ins. Eft­ir frá­fall hans leit­aði Gunn­ar í kirkj­una.

Mest lesið í mánuðinum

„Ég kom úr mjög nánu, fallegu og stóru samfélagi kynlífsverkafólks“
3
Viðtal

„Ég kom úr mjög nánu, fal­legu og stóru sam­fé­lagi kyn­lífs­verka­fólks“

Eft­ir út­skrift úr há­skóla sótti Logn um rúm­lega hundrað störf en ekk­ert kom út úr því. Hán átti góða vini í kyn­lífs­vinnu sem hún leit­aði til. Síð­ar stofn­aði hán Rauðu regn­hlíf­ar­ina, sam­tök kyn­lífs­verka­fólks á Ís­landi. „Sam­stað­an sem kann að eiga sér stað með­al kyn­lífs­verka­fólks er eitt það fal­leg­asta og dýr­mæt­asta sem ég hef upp­lif­að í mínu lífi.“

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár