Krefjast þess að Ísrael sleppi tveimur úr Gasa-flotanum

Mann­rétt­inda­skrif­stofa Sam­ein­uðu þjóð­anna krefst þess að Spán­verj­anum Saif Abu Keshek og Bras­il­íu­mann­inum Thiago Avila, sem haldið er í fang­elsi í Ashkelon, verði taf­ar­laust sleppt úr haldi. Þeir voru meðal tuga aðgerða­sinna í skipa­flota á leið til Gasa sem ísra­elskar her­sveitir stöðv­uðu á alþjóð­legu haf­svæði undan ströndum Grikk­lands á fimmtu­dag.

Krefjast þess að Ísrael sleppi tveimur úr Gasa-flotanum
Varðhald Thiago Avila í dóms­húsi í Ísrael, þar sem hann var úrskurð­aður í gæslu­varð­hald eftir að hafa verið hand­tek­inn á alþjóð­legu haf­svæði úti fyrir Grikk­landi. Mynd: ILIA YEFIMOVICH / AFP

Sam­ein­uðu þjóð­irnar kalla eftir því að Ísraelar láti tvo aðgerða­sinna, sem teknir voru úr skipa­flota á leið til Gasa, taf­ar­laust lausa og krefj­ast rann­sóknar á „óhugn­an­legum frá­sögnum“ um að þeir hefðu sætt alvar­legri illri með­ferð.

Spænski rík­is­borg­ar­inn Saif Abu Keshek og brasil­íski rík­is­borg­ar­inn Thiago Avila, sem haldið er í fang­elsi í Ashkelon, voru meðal tuga aðgerða­sinna í skipa­flota á leið til Gasa sem ísra­elskar her­sveitir stöðv­uðu á alþjóð­legu haf­svæði undan ströndum Grikk­lands síð­ast­lið­inn fimmtu­dag.

„Ísraelar verða að láta með­limi Global Sumud-flot­ans, Saif Abu Keshek og Thiago Avila, lausa taf­ar­laust og skil­yrð­is­laust, en þeir voru hand­teknir á alþjóð­legu haf­svæði og fluttir til Ísraels þar sem þeim er enn haldið án ákæru,“ sagði Thameen Al-Kheetan, tals­maður mann­rétt­inda­skrif­stofu Sam­ein­uðu þjóð­anna, í yfir­lýs­ingu.

„Það er ekki glæpur að sýna sam­stöðu og reyna að koma með mann­úð­ar­að­stoð til palest­ínsku þjóð­ar­innar á Gasa, sem er í brýnni þörf fyrir hana,“ …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Fjármagnið ræður för, meðan dælt er stöðugt peningum í óhæfuverk gyðinga halda þeir áfram.
    1
  • ÁH
    Ágústa Harðardóttir skrifaði
    Í greininni stendur að Thiago Avila og Saif Abu Keshek hafi verið meðal TUGA aðgerðarsinna í skipa­flota á leið til Gasa sem ísra­elsk­ar her­sveit­ir stöðv­uðu á al­þjóð­legu haf­svæði und­an strönd­um Grikk­lands á fimmtu­dag.
    En það rétta er að 180 manns var rænt. 178 voru fluttir í land í Grikklandi og síðan sleppt. Nánar hér: https://globalsumudflotilla.org/
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár