Aníta er menntuð í dýrafræði og starfaði áður í dýraathvarfi í Evrópu. Hún býr nú í Asíu þar sem hún ver miklum tíma í að bjarga dýrum. Tuttugu og tveggja ára gömul hóf hún að stunda erótískan dans.
„Ég fékk alltaf að heyra að það eigi að vorkenna konum sem eru að dansa eða eru í erótískum störfum. Ég vann mest í Danmörku og Ástralíu og þar upplifði ég að samfélagið almennt var með afslappað viðhorf og lítur á þetta sem vinnu eins og allt annað.“ Aníta segir að það versta við vinnuna séu fordómar samfélagsins en viðbrögð fólks við starfi hennar sem erótískur dansari hafa verið misjöfn í gegnum árin. Hún segir að mörk sín séu virt þegar hún dansar.
Aníta lærði dýrafræði á sínum tíma og vann í nokkur ár í dýragarði í Evrópu. Hún fann að hún vildi frekar vera í sjálfboðavinnu úti í heimi „þar sem …


















































Athugasemdir