Byggðaþróunarverkefni sem horft er til

Þekkingar­setrið Nýheimar var sett á fót árið 2013 á Höfn í Horna­firði og er óhætt að segja að það hafi verið mikil­vægur þáttur í samfélaginu fyrir austan síðan þá. Önnur sveitar­félög horfa hýru auga á starfsemina sem vinnur markvisst með ungu fólki og eflir byggða­þróunina á svæðinu.

Hugrún Harpa Reynis­dóttir er forstöðu­kona setursins og hefur starfað þar frá árinu 2014. Hún segir að formið á setrinu sé sérstakt, en um er að ræða ákveðinn samstarfs­hatt margra stofnana.

„Grunn­stoðirnar okkar eru menntun, menning, nýsköpun og rann­sóknir. Við erum í byggingunni sem heitir Nýheimar hér á Höfn í Horna­firði og þar til húsa er líka menningar­miðstöð Horna­fjarðar, bóka­safnið og framhalds­skólinn. Eftir að þetta var sett á fót fóru svo að tínast inn á skrifstofu­rýmið á neðri hæðinni ýmsar ólíkar stofnanir og það skapaðist strax samstarfs­vilji milli þessara stofnana um að efla þessar fjórar stoðir, sem ég talaði um, á svæðinu og í þeim tilgangi er setrið stofnað, til að efla þetta samstarf,“ segir Hugrún Harpa.

Stofnanirnar sem hafa komið að setrinu frá upphafi eru Framhalds­skólinn í Austur-Skafta­fellssýslu, Menningar­miðstöð Horna­fjarðar, Vöruhúsið, Fab Lab, Samtök sunnverska sveitar­félaga, Háskóla­félag Suður­lands, …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Öll samræða, öll virðing, öll þekking, öll umhyggja, öll þátttaka er lýðræði eins og einhver sagði, ef þú hefur reynt allt prufaðu þá heilbrigða skynsemi.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár