Olíufélag greinir frá risagróða

Stríðið gegn Íran skapar stökk­breyttan hagnað fyrir olíu­fram­leið­endur.

Olíufélag greinir frá risagróða
For­stjóri BP Banda­ríkja­konan Meg O'Neill reyndi að draga úr lofts­lagstengdri upp­lýs­inga­gjöf eftir að hún tók við starfi for­stjóra BP. Hér ræðir hún áhrif lok­unar Hor­mússunds á hag­kerfið á skrif­stofu breska for­sæt­is­ráð­herr­ans í Downing-stræti 10 í London. Mynd: AFP

Breski orkuris­inn BP til­kynnti í dag um mikla hagn­að­ar­aukn­ingu á fyrsta árs­fjórð­ungi þar sem hrá­ol­íu­verð hækk­aði mikið í kjöl­far stríðs­ins í Mið-Aust­ur­löndum.

Olíuverð hefur hækkað frá því að stríð Banda­ríkj­anna og Ísraels gegn Íran hófst 28. febr­úar og hefur oft sveifl­ast mikið vegna síbreyti­legra frétta af stríð­inu.

Hagnaður BP eftir skatta jókst í 3,8 millj­arða dala (466 millj­arða króna) á tíma­bil­inu jan­úar–mars úr 687 millj­ónum dala (84 millj­örðum króna) á sama tíma­bili árið áður, að því er fram kom í afkomutil­kynn­ingu frá BP sem er skráð í kaup­höll­inni í London.

Und­ir­liggj­andi hagn­aður, sem fylgst er náið með, meira en tvö­fald­að­ist í 3,2 millj­arða dala úr 1,4 millj­örðum dala árið áður, en sú tala „end­ur­speglar ein­stakt fram­lag frá olíu­við­skiptum“, sagði í yfir­lýs­ing­unni.

„Á heild­ina litið gengur rekstur okkar vel. Þetta var annar árs­fjórð­ungur með sterkri rekstrar- og fjár­hags­legri afkomu og við náðum frek­ari árangri í átt að mark­miðum okkar fyrir árið 2027,“ sagði Meg O'Neill for­stjóri, sem var ráðin í lok síð­asta árs til að taka við af Murray Auchincloss.

Sam­stæðan hafði til­kynnt um miðjan apríl að hún bygg­ist við að hagn­ast á hækk­andi olíu­verði og benti á að verð á Brent-Norð­ursjáv­ar­olíu, alþjóð­legu við­miði, hafi að með­al­tali verið 81,13 dalir á tunnu á fyrsta árs­fjórð­ungi, sam­an­borið við 63,73 dali á fjórða árs­fjórð­ungi síð­asta árs.

Olíuverð hefur verið óstöðugt vegna stríðs­ins og fór nálægt 120 dölum á tunnu í mars, nokkuð sem BP hagn­að­ist vel á.

Fyr­ir­tækið sagði um miðjan apríl að hver eins dals breyt­ing á verði olíu­tunnu hefði 340 millj­óna dala áhrif á árlegan rekstr­ar­hagnað þess fyrir skatta.

BP „hefur unnið sleitu­laust að því að halda eignum okkar í öruggri, áreið­an­legri og skil­virkri fram­leiðslu“ á sama tíma og unnið er „í umhverfi átaka og flók­inna aðstæðna,“ sagði O'Neill.

Banda­ríski for­stjór­inn tók við starfi sínu í byrjun apríl með það verk­efni að hrinda í fram­kvæmd end­ur­reisn­ar­á­ætlun fyrir sam­stæð­una sem átti í erf­ið­leikum, en hagn­aður hennar eftir skatta árið 2025 dróst saman um 86 pró­sent á milli ára og nam 55 millj­ónum dala.

„Einfaldara, sterkara“

Afkoma BP hefur almennt verið lak­ari en keppi­nauta þess á und­an­förnum árum og á síð­asta ári gerði fyr­ir­tækið breyt­ingar á stjórn sinni eftir að hafa skorið niður fjár­fest­ingar í hreinni orku og snúið sér aftur að arð­bær­ari olíu- og gasvið­skiptum sínum.

O'Neill ætlar að end­ur­skipu­leggja fyr­ir­tækið og aðskilja greini­lega vinnslu- og dreif­ing­ar­starf­semi þess.

Markmið hennar er að gera BP að „ein­fald­ara, sterkara og verð­mæt­ara fyr­ir­tæki,“ sagði hún í dag.

„Nú verðum við að nýta þau tæki­færi sem eru til staðar í eigna­safni okkar, ein­falda vinnu­brögð okkar, opna fyrir vöxt og auka arð­semi,“ bætti hún við.

Nýi for­stjór­inn fékk harða ádrepu frá hlut­höfum í síð­ustu viku á aðal­fundi þar sem þeir höfn­uðu að mestu tveimur til­lögum stjórn­ar­innar sem skrefi aftur á bak í gagn­sæi, sér­stak­lega varð­andi lofts­lags­stefnu.

Ein til­lagan mið­aði að því að fella úr gildi tvær álykt­anir sem sam­þykktar voru á fyrri aðal­fundum, sem skyld­uðu BP til að birta til­teknar lofts­lagstengdar upp­lýs­ingar.

Hin var ætluð til að heim­ila að hlut­hafa­fundir yrðu ein­göngu haldnir á net­inu.

Stjórn­ar­for­maður BP, Albert Manifold, sem tók við emb­ætti 1. októ­ber, mætti einnig mót­byr þar sem um 18 pró­sent hlut­hafa greiddu atkvæði gegn kjöri hans.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Lausnin er að taka upp skömtunarkerfi á olíu frekar en að láta efnahag kaupenda ráða för.
    0
  • GH
    Greg Hill skrifaði
    Guði sé lof að olíufélögin eru í lagi: Ég hef verið svo áhyggjufullur út af þeim.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár