Oddvitasamtöl Heimildarinnar hefjast í kvöld

Lesendur geta sent inn spurn­ingar fyrir odd­vita­sam­töl Heim­ild­ar­innar fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Í kvöld mæt­ast Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir fyrir Vinstrið og Silja Sóley Birg­is­dóttir fyrir Sós­í­alista­flokk Íslands í fyrri umferð og Einar Þor­steins­son fyrir Framsókn og Björg Magn­ús­dóttir fyrir Viðreisn í þeirri seinni.

Oddvitasamtöl Heimildarinnar hefjast í kvöld
Velkomin Áskrif­endur og aðrir áhuga­samir geta tryggt sér miða í sal­inn þar sem odd­vita­sam­töl Heim­ild­ar­innar fara fram. Miðasala fer fram á Tix.is en það er Valur Grett­is­son blaða­maður sem stýrir umræð­unum. Mynd: Golli

Odd­vita­sam­töl Heim­ild­ar­innar hefj­ast í kvöld í Tjarn­ar­bíó og standa yfir næstu tvo daga. Þar mæt­ast odd­vitar og full­trúar fram­boða í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í umræðum sem streymt er í beinni útsend­ingu. Valur Grett­is­son blaða­maður stýrir umræð­unum.

Við­burð­ur­inn fer fram fram fyrir opnum sal og gefst áhorf­endum kostur á að taka þátt með því að senda inn spurn­ingar í gegnum form á vefnum. Þú getur nálg­ast formið hér. 

Hægt er að kaupa miða í sal­inn, en áskrif­endur Heim­ild­ar­innar njóta helm­ings­af­sláttar með afslátt­ar­kóða sem sendur hefur verið í tölvu­pósti. Miðasala fer fram á Tix.is. Streymið verður hins vegar opið öllum án end­ur­gjalds, en upp­taka af hverju kvöldi verður aðgengi­leg áskrif­endum í kjöl­farið.

Dag­skráin hefst í kvöld með tveimur umræðu­lotum. Klukkan 17.00 mæt­ast Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir fyrir Vinstrið og Silja Sóley Birg­is­dóttir fyrir Sós­í­alista­flokk Íslands. Klukkan 18.00 taka við Einar Þor­steins­son fyrir Framsókn og Björg Magn­ús­dóttir fyrir Viðreisn.

Á morgun, þriðju­dag­inn 28. apríl, hefj­ast sam­tölin einnig klukkan 17.00 þegar Ari Edwald fyrir Miðflokk mætir Baldri Borg­þórs­syni fyrir Okkar borg. Klukkan 18.00 ræða síðan Pétur H. Mart­eins­son fyrir Sam­fylk­ingu og Hildur Björns­dóttir fyrir Sjálf­stæð­is­flokk.

Sam­tala­röð­inni lýkur mið­viku­dag­inn 29. apríl með odd­vitaum­ræðum þar sem Ingimar Þór Frið­riks­son fyrir Góðan dag­inn, Guð­mundur Ingi Þór­odds­son fyrir Flokk fólks­ins og Kristinn Jón Ólafsson fyrir Pírata mæt­ast. Þær umræður hefj­ast klukkan 18.00.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár