Oddvitasamtöl Heimildarinnar hefjast í kvöld

Les­end­ur geta sent inn spurn­ing­ar fyr­ir odd­vita­sam­töl Heim­ild­ar­inn­ar fyr­ir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar. Í kvöld mæt­ast Sanna Magda­lena Mörtu­dótt­ir fyr­ir Vinstr­ið og Silja Sól­ey Birg­is­dótt­ir fyr­ir Sósí­al­ista­flokk Ís­lands í fyrri um­ferð og Ein­ar Þor­steins­son fyr­ir Fram­sókn og Björg Magnús­dótt­ir fyr­ir Við­reisn í þeirri seinni.

Oddvitasamtöl Heimildarinnar hefjast í kvöld
Velkomin Áskrifendur og aðrir áhugasamir geta tryggt sér miða í salinn þar sem oddvitasamtöl Heimildarinnar fara fram. Miðasala fer fram á Tix.is en það er Valur Grettisson blaðamaður sem stýrir umræðunum. Mynd: Golli

Oddvitasamtöl Heimildarinnar hefjast í kvöld í Tjarnarbíó og standa yfir næstu tvo daga. Þar mætast oddvitar og fulltrúar framboða í komandi borgarstjórnarkosningum í umræðum sem streymt er í beinni útsendingu. Valur Grettisson blaðamaður stýrir umræðunum.

Viðburðurinn fer fram fram fyrir opnum sal og gefst áhorfendum kostur á að taka þátt með því að senda inn spurningar í gegnum form á vefnum. Þú getur nálgast formið hér

Hægt er að kaupa miða í salinn, en áskrifendur Heimildarinnar njóta helmingsafsláttar með afsláttarkóða sem sendur hefur verið í tölvupósti. Miðasala fer fram á Tix.is. Streymið verður hins vegar opið öllum án endurgjalds, en upptaka af hverju kvöldi verður aðgengileg áskrifendum í kjölfarið.

Dagskráin hefst í kvöld með tveimur umræðulotum. Klukkan 17.00 mætast Sanna Magdalena Mörtudóttir fyrir Vinstrið og Silja Sóley Birgisdóttir fyrir Sósíalistaflokk Íslands. Klukkan 18.00 taka við Einar Þorsteinsson fyrir Framsókn og Björg Magnúsdóttir fyrir Viðreisn.

Á morgun, þriðjudaginn 28. apríl, hefjast samtölin einnig klukkan 17.00 þegar Ari Edwald fyrir Miðflokk mætir Baldri Borgþórssyni fyrir Okkar borg. Klukkan 18.00 ræða síðan Pétur H. Marteinsson fyrir Samfylkingu og Hildur Björnsdóttir fyrir Sjálfstæðisflokk.

Samtalaröðinni lýkur miðvikudaginn 29. apríl með oddvitaumræðum þar sem Ingimar Þór Friðriksson fyrir Góðan daginn, Guðmundur Ingi Þóroddsson fyrir Flokk fólksins og Kristinn Jón Ólafsson fyrir Pírata mætast. Þær umræður hefjast klukkan 18.00.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Hann er ekki Messías“
2
Erlent

„Hann er ekki Mess­ías“

An­dy Burn­ham, sem fékk við­ur­nefn­ið „kon­ung­ur norð­urs­ins“ sem borg­ar­stjóri Manchester, virð­ist standa á þrösk­uldi þess að verða næsti leið­togi Verka­manna­flokks­ins og næsti for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Þetta er þriðja at­lag­an að for­manns­stóln­um og að hans sögn „síð­asta tæki­fær­ið“ til að breyta Verka­manna­flokkn­um. Nú vinn­ur hann að því að róa fjár­festa. En hver er þessi mað­ur sem var fagn­að svo inni­lega af sam­flokks­mönn­um þeg­ar hann sór embættiseið sem þing­mað­ur?
Samfélagsleg ákvörðun að fækka sjálfsvígum
3
InnlentElsku Embla

Sam­fé­lags­leg ákvörð­un að fækka sjálfs­víg­um

Hvert sjálfs­víg kost­ar sam­fé­lag­ið um 500 millj­ón­ir, en lít­ið hef­ur ver­ið lagt í for­varn­ir. Fyrstu að­gerða­áætl­un gegn sjálfs­víg­um var stung­ið of­an í skúffu. Næstu áætl­un fylgdi ekk­ert fjár­magn. Nú er unn­ið er að fram­gangi þriðju áætl­un­ar­inn­ar. Guð­rún Jóna Guð­laugs­dótt­ir held­ur ut­an um verk­efn­ið, en hún missti son sinn í sjálfs­vígi þeg­ar hann var á fyrsta ári í MR. „Ég vil ekki trúa því að hann hafi vilj­að fara frá mér. En ég get vel skil­ið að hann hafi ekki treyst sér til að lifa.“
Dragdrottningin sem leitaði skjóls á Íslandi: „Ég hélt að þetta væru endalokin“
5
Viðtal

Dragdrottn­ing­in sem leit­aði skjóls á Ís­landi: „Ég hélt að þetta væru enda­lok­in“

„Þú læt­ur fólk aldrei sjá þig í dragi fyr­ir ut­an klúbb­ana,“ seg­ir Ray Milano, flótta­mað­ur frá Venesúela. Hann varð fyr­ir árás í heimalandi sínu þeg­ar hann skemmti sem dragdrottn­ing­in Cris­art­i­sta. Ray hafði lagt drag-hæl­ana á hill­una þeg­ar hon­um bauðst að koma fram með nýj­um ís­lensk­um vini sín­um, stór­stjörn­unni Páli Ósk­ari Hjálm­týs­syni.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.

Mest lesið í mánuðinum

Sáu sárin sem hún faldi
1
ViðtalElsku Embla

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.
Milljarða fjárfestingar Guðbjargar sem ekki sjást í skýrslunni
5
Úttekt

Millj­arða fjár­fest­ing­ar Guð­bjarg­ar sem ekki sjást í skýrsl­unni

Við­skipta­veldi Guð­bjarg­ar Matth­ías­dótt­ur bygg­ir fyrst og fremst á hagn­aði í sjáv­ar­út­vegi. Frá því að hún sett­ist í stjórn Ís­fé­lags­ins hafa nærri 15 millj­arð­ar streymt úr Ís­fé­lag­inu í Vest­manna­eyj­um til Guð­bjarg­ar og fjöl­skyldu. Hvorki hún né fjár­fest­ing­ar henn­ar koma fram í skýrslu sem unn­in var að beiðni Al­þing­is um eign­ir, eig­end­ur og fjár­fest­ing­ar stærstu út­gerð­ar­fé­laga lands­ins.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár