Veðurfræðingur á sumardaginn fyrsta: „Vorið er komið“

Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur fagnar sum­ar­deg­inum fyrsta með því að lýsa vorið komið. Sumarið kemur hins vegar í skrefum. Engin leið er að spá fyrir um hvernig veðrið verður í sumar, en síð­asta sumar var óvenju hlýtt og þar áður var óvenju kalt. Hlýnun sjávar hefur áhrif á veð­ur­far, svo fylgj­ast þarf með breyt­ingum á AMOC-haf­straumnum og tala máli Íslend­inga á alþjóða­vett­vangi.

Veðurfræðingur á sumardaginn fyrsta: „Vorið er komið“

Sumarið 2025 var eitt það hlýjasta í sögu mæl­inga á Íslandi, en sum­arið 2024 var talið eitt það kaldasta á þess­ari öld. Engin leið er að spá fyrir um hvernig sum­arið verður í ár, segir Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur.

Í spá­kortum birt­ast engar breiðar línur sem hægt er að styðj­ast við, ekki enn að minnsta kosti. Hann tekur stöð­una aftur þann 10. maí í von um að geta séð aðeins inn í fram­tíð­ina, eitt­hvað lengra en næstu daga: „Næstu daga verða hlý­indi. Kalt loft lúrir fyrir norðan landið og vestan og um tíma var útlit fyrir að það myndi ná til lands fyrir helgi en nýjar spár gera ráð fyrir því að svo verði ekki. Þetta er tími vor­hreta. Jafnvel þótt það verði minni­háttar hret um helg­ina hlýnar strax aftur.“

Vorið er komið

Á sum­ar­dag­inn fyrsta er óhætt að halda því fram að vorið sé komið. „Vorið er komið og kom …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár