Lýsti myrkum hugsunum áður en hann skaut börnin sín til bana

Eft­ir að hafa ráð­ist á eig­in­konu sína skaut fað­ir átta börn til bana, þar af voru sjö hans eig­in. Árás­ar­mað­ur­inn hafði glímt við and­lega erf­ið­leika og lýst myrk­um hugs­un­um. Eig­in­kon­an er sögð hafa vilj­að skiln­að áð­ur en árás­in átti sér stað. Slík­ar árás­ir koma upp á fimm daga fresti í Banda­ríkj­un­um, þótt þetta sé ban­væn­asta skotárás­in þar í landi síð­ustu tvö ár.

Lýsti myrkum hugsunum áður en hann skaut börnin sín til bana
Á vettvangi Lögregluþjónn ræðir við fjölmiðla á vettvangi skotárásarinnar. Í bakgrunni er húsið þar sem börnunum var ráðinn bani.

Snemma sunnudagsmorguns í suðurríkinu Louisiana í Bandaríkjunum skaut karlmaður átta börn til bana, þar af voru sjö hans eigin. Um var að ræða heimilisofbeldi, að sögn lögreglu þar í landi. 

Í gráu húsi í borginni Shreveport áttu fjöldamorðin sér stað, en um er að ræða mannskæðustu skotárás í Bandaríkjunum síðustu tvö ár, samkvæmt gögnum frá Gun Violence Archive. 

Þrír drengir og fimm stúlkur á aldrinum þriggja til ellefu ára voru skotin til bana. Sjö barnanna voru systkini, en frændsystkini þeirra lést einnig í árásinni. Níunda barnið slapp með meiðsli sem eru ekki talin lífshættuleg, en það bjargaði sér með því að stökkva út um glugga á annarri hæð. 

Fimm skotför á hurðinni

Á hvítum dyrum lítils tveggja hæða hús mátti sjá fimm skotför, að sögn myndatökumanns AFP sem fór á vettvang. Fólk hefur lagt blómvendi við húsið til að minnast barnanna. 

Nágranni, hinn 72 ára gamli Freddie Montgomery, sagðist hafa séð lögreglu bera lík úr húsinu að morgni dags. „Á sama tíma í gær voru öll þessi börn úti í garði að leika sér. Hann sat á svölunum,“ sagði Montgomery og átti við föður þeirra. 

Hann hét Shamar Elkins og var 31 árs gamall. Hann flúði af vettvangi en var skotinn til bana af lögreglu í eftirför sem hófst eftir að hann rændi bifreið. „Að lokinni eftirförinni steig hinn grunaði út úr bifreiðinni með skotvopn þannig að lögreglumenn okkar urðu að lokum að gera hann óvirkan,“ sagði lögreglumaðurinn Chris Bordelon við fjölmiðla. 

Náði að gera nágranna viðvart 

Börnin sem létust hafa verið nafngreind af mæðrum sínum sem Jayla Elkins, 3 ára, Shayla Elkins, 5 ára, Kayla Pugh, 6 ára, Layla Pugh, 7 ára, Markaydon Pugh, 10 ára, Sariahh Snow, 11 ára, Khedarrion Snow, 6 ára og Braylon Snow, 5 ára.

Að auki eru tvær konur í lífshættu, þar á meðal móðir sumra barnanna sem létu lífið. Sjónvarpsstöðin KTBS greindi frá því að konurnar tvær hefðu verið skotnar í höfuðið. Í samtali við AFP greindi lögreglan frá því að önnur konan, sem var skotin í neðri hluta andlits, hafi náð að gera nágranna viðvart. Hann hringdi síðan í neyðarnúmerið 911 á milli klukkan 5:00 og 5:30 að morgni að staðartíma.

Rannsókn málsins stendur yfir og reynir lögreglan að komast að ástæðum verknaðarins, sem var framinn á þremur mismunandi stöðum. „Við teljum að hann sé sá eini sem skaut,“ sagði lögreglumaðurinn Bordelon og lýsti atvikinu sem heimilisofbeldi. Talið er að Elkins hafi fyrst skotið eiginkonu sína og móður barnanna, og farið þaðan á annað heimili þar sem hann drap börnin.

Lýsti dökkum hugsunum

Lögregla sagði að Elkins hefði verið handtekinn árið 2019 í tengslum við vopnamál þar sem hann játaði sök, en ekki væri vitað um önnur tilvik heimilisofbeldis í fortíð hans. Í því tilviki hafði hann tekið skammbyssu úr buxnastreng sínum og skotið fimm skotum að bíl eftir að annar ökumaður beindi vopni að honum. Eitt skotið fannst nálægt skóla þar sem börn voru að leika sér úti.

Bandarískir fjölmiðlar greindu frá því að hann hefði starfað í þjóðvarðliði Louisiana í sjö ár áður en hann hætti. Á því tímabili var hann aldrei sendur í hernaðaraðgerðir.

Samkvæmt The New York Times hafði Elkins átt í hjónabandsvanda og glímt við andlega vanlíðan. Hafði hann sagt stjúpföður sínum að eiginkonan vildi skilnað og að hann væri að „drukkna í myrkum hugsunum.“

Sjálfsvígshugsanir herjuðu á hann, hefur miðillinn eftir fjölskyldumeðlimum. Á páskadag hringdi hann örvæntingarfullur og grátandi í móður sína og stjúpföður. Í bakgrunni mátti heyra börn að leik. „Ég sagði við hann: Þú getur sigrast á þessu, sama hvað þú ert að ganga í gegnum,“ rifjaði stjúpfaðir hans upp. „Hann svaraði: Sumir snúa ekki aftur frá sínum djöflum.“

Í kjölfarið hafi hann sent móður sinni mynd af fjölskyldunni með þeim skilaboðum að allt væri í lagi. Hann svaraði ekki síðustu skilaboðum hennar. 

Á fimm daga fresti

Þá hefur miðillinn eftir fjölskylduvini að ekkert óvenjulegt hafi verið við hegðun Elkins þegar hún sá hann um síðustu helgi. „Ég var að fara að gera mér kaffi þegar ég fékk símtalið,“ sagði hún. „Börnin mín — börnin mín eru farin.“

The Guardian greinir frá því að vegna tengsla árásarmannsins við börnin falla morðin undir skilgreiningu á því „fjölskyldueyðingu,“ sem er hugtak sem hefur verið notað frá níunda áratugnum. 

Langoftast hafa slík mál snúist um karlmann sem beitir skotvopni til að drepa nána fjölskyldumeðlimi áður en hann sviptir sig lífi eða er felldur. Í Bandaríkjunum eru þessi mál gjarna álitin vera einangraður harmleikur, en rannsókn Indianapolis Star árið 2023 leiddi í ljós að þar í landi koma slík mál koma að jafnaði upp á fimm daga fresti. 

Tilgangslaus harmleikur

Borgarstjóri Shreveport, Tom Arceneaux, boðaði blaðamannafundar vegna málsins, sem hann sagði mögulega versta harmleik sem borgarbúar hefðu upplifað á undanförnum árum. Alls búa um 177 þúsund manns í borginni. 

„Þetta er hræðilegur atburður. Það er sérstaklega alvarlegt og sorglegt að fórnarlömbin eru öll börn,“ sagði borgarstjórinn. „Þetta minnir okkur á að illska er enn til staðar í heiminum og að við verðum að berjast gegn henni með góðu og færa ljós inn í myrkrið.“

Annar tveggja öldungadeildarþingmanna Louisiana, repúblikaninn Bill Cassidy, lýsti atburðinum sem „hræðilegu ofbeldi“.

Ríkisstjóri Louisiana, Jeff Landry, sagðist vera „miður sín“.

Mike Johnson, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings og þingmaður svæðisins, fordæmdi atburðinn og kallaði hann „tilgangslausan harmleik“.

„Þetta er sorglegur morgunn í Shreveport og við syrgjum öll,“ sagði Arceneaux borgarstjóri á blaðamannafundi.

Í Bandaríkjunum eru skotvopn víða aðgengileg og þúsundir manna látast árlega af völdum byssuofbeldis. Þar er hlutfall vopnatengdra dauðsfalla það hæsta á meðal þróaðra ríkja. Fram að sunnudeginum höfðu að minnsta kosti sex fjöldamorð verið framin á árinu. 

Engin læti bárust frá húsinu 

Liza Demming, sem býr í næsta nágrenni við einn vettvang árásarinnar, sagði í samtali við Associated Press að öryggismyndavél hennar hefði náð myndskeiði af árásarmanninum hlaupa frá húsinu í átt að dekkjaverkstæði. Sjálf hefði hún heyrt tvö skot. 

Síðar hafi hún séð lík eins barnsins liggja hulið á þaki hússins. 

Hún hafi ekki hafa heyrt neinar deilur eða rifrildi fyrir árásina. „Það voru engin læti, engin átök,“ sagði hún. „Allt var hljótt.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Kynlífsverkafólk deilir reynslu sinni: „Glæpavæðing einangrar mann“
1
Úttekt

Kyn­lífs­verka­fólk deil­ir reynslu sinni: „Glæpa­væð­ing ein­angr­ar mann“

Fjór­ir ein­stak­ling­ar sem unn­ið hafa mis­mun­andi kyn­lífs­vinnu á Ís­landi segja þörf á að breyta lög­um og laga við­horf sam­fé­lags­ins. Ein­angr­un fólks sem vinn­ur slíka vinnu sé hættu­leg. Í dag hafa þau kom­ið upp sínu eig­in tengslaneti til að styðja hvert ann­að og passa upp á ör­yggi og mann­rétt­indi kyn­lífs­verka­fólks og þo­lenda vænd­is.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Kynlífsverkafólk deilir reynslu sinni: „Glæpavæðing einangrar mann“
3
Úttekt

Kyn­lífs­verka­fólk deil­ir reynslu sinni: „Glæpa­væð­ing ein­angr­ar mann“

Fjór­ir ein­stak­ling­ar sem unn­ið hafa mis­mun­andi kyn­lífs­vinnu á Ís­landi segja þörf á að breyta lög­um og laga við­horf sam­fé­lags­ins. Ein­angr­un fólks sem vinn­ur slíka vinnu sé hættu­leg. Í dag hafa þau kom­ið upp sínu eig­in tengslaneti til að styðja hvert ann­að og passa upp á ör­yggi og mann­rétt­indi kyn­lífs­verka­fólks og þo­lenda vænd­is.
„Þvættingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðlileg tengsl við erlenda flokka og hugveitur
4
GreiningMAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvætt­ing­ur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðli­leg tengsl við er­lenda flokka og hug­veit­ur

Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son, formað­ur Mið­flokks­ins, sagði um­fjöll­un Heim­ild­ar­inn­ar um tengsl flokks­ins við MAGA-hreyf­ing­una „full­kom­inn þvætt­ing“ en stað­festi fund sinn með Re­públi­kön­um í Gauta­borg. Aðr­ir flokks­menn hafa nú sagt frá tengsl­um við ECR-flokk­inn og Her­ita­ge Foundati­on en eft­ir standa spurn­ing­ar um hver borg­aði.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár