Hart sótt að Starmer: Skipaði sendiherra sem hafði fallið á öryggisprófi

Peter Mandel­son féll á ör­yggis­prófi þeg­ar ver­ið var að meta hæfi hans til þess að gegna sendi­herra­stöðu í Washingt­on,. Þrátt fyr­ir það fékk hann stöð­una. Eft­ir að þetta var af­hjúp­að í The Guar­di­an sæt­ir Keir Star­mer, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, vax­andi þrýst­ingi um að segja af sér.

Hart sótt að Starmer: Skipaði sendiherra sem hafði fallið á öryggisprófi

Sótt hefur verið að Starmer mánuðum saman vegna málsins sem vakið hefur reiði, eftir að Mandelsons var árið 2024 tilnefndur í sendiherrastöðuna, þrátt fyrir náin tengsl hans við kynferðisbrotamanninn, Jeffrey Epstein.

Mandelson hefur lengi verið innmúraður í Verkamannaflokknum, stjórnarflokki Starmers. Á sínum ferli hefur hann gegnt mörgum ráðherraembættum, en verið hundeltur af hneykslismálum. Í tvígang hefur hann þurft að segja af sér ráðherraembætti. Þrátt fyrir það tók hann við sendiherrastöðunni í fyrra. 

Kröfur stjórnarandstöðunnar um að forsætisráðherrann segði af sér voru skýrar síðastliðinn fimmtudag þegar ríkisstjórnin staðfesti afhjúpun Guardian um að sendiherrann hefði verið skipaður þrátt fyrir að hafa fallið á öryggisathugun.

Kenna embættismönnum um

Ríkisstjórnin kennir embættismönnum utanríkisráðuneytisins um og segir að hvorki Starmer né utanríkisráðherrann hafi verið upplýstir um misheppnaða öryggisathugun Mandelsons fyrr en í vikunni.

Æðsti embættismaður utanríkisráðuneytisins, Olly Robbins, hefur sagt af sér eftir á þeim forsendum að Starmer treysti honum ekki lengur, því hann tilkynnti forsætisráðherra ekki um þá ákvörðun ráðuneytisins að leyfa skipun Mandelsons að halda áfram „gegn tilmælum bresku öryggisathugunarinnar“.

Sendiherraembættið í Washington er talið virtasta og mikilvægasta sendiherraembætti Bretlands..

Forsætisráðherra sagður öskureiður

Fyrr á árinu sögðu tveir af helstu pólitísku aðstoðarmönnum Starmers af sér vegna hneykslismálsins, mitt í pólitískum stormi.

Starmer hefur ítrekað þurft að svara fyrir dómgreind sína vegna skipunar Mandelson, sem hann rak síðan í september aðeins nokkrum mánuðum eftir að ráðherrann fyrrverandi tók við sendiherraembættinu. Kemi Badenoch, leiðtogi hægrisinnaða Íhaldsflokksins í stjórnarandstöðu, skrifaði á X: „Starmer hefur svikið þjóðaröryggi okkar. Hann ætti að fara.“

Forsætisráðherrann hefur sakað Mandelson um að ljúga um umfang tengsla sinna við Epstein í öryggisathugunarferlinu. Ráðherrann Darren Jones kom forsætisráðherranum til varnar og sagði að það væri „óásættanlegt“ að utanríkisráðuneytið hefði hunsað öryggisathugunarferlið. Neitaði hann því að forsætisráðherrann hefði villt um fyrir þinginu og kallaði hið mistæka ferli „brest ríkisins“. „Þú getur ímyndað þér að forsætisráðherrann hafi verið öskureiður, eins og búast mátti við, yfir því að honum hafi aðeins verið tilkynnt um þetta á þriðjudagskvöld,“ sagði Jones við Sky News.

Hann þvertók einnig fyrir að staða Starmers væri í hættu. „Almenningur getur séð í Keir Starmer að hann er sterkur, trúverðugur leiðtogi sem hefur áhrif á heimsvísu,“ fullyrti hann.

Lögreglurannsókn hafin 

Starmer rak Mandelson sem sendiherra eftir að ný skjöl voru birt sem innihéldu nýjar upplýsingar um tengsl hans við Epstein. Lögreglan hefur hafið rannsókn á ásökunum um embættisbrot af hálfu Mandelsons, sem var handtekinn og látinn laus gegn tryggingu í febrúar. Hann hefur ekki verið ákærður og neitar refsiverðri háttsemi.

Lögreglan rannsakar Mandelson vegna ásakana um að hann hafi lekið viðkvæmum skjölum til Epsteins þegar hann var ráðherra í ríkisstjórn, meðal annars í fjármálahruninu 2008.

Í áreiðanleikakönnun sem lögð var fyrir Starmer í desember 2024 var bent á röð skýrslna sem lýstu tengslum Mandelsons við Epstein, sem var dæmdur fyrir kynferðisbrot í Flórída árið 2008, þar á meðal fyrir að hafa tælt ólögráða einstakling.

Þar kom fram að samband þeirra hófst þegar Mandelson var ráðherra í ríkisstjórn og hélt áfram eftir lok síðustu ríkisstjórnar Verkamannaflokksins í Bretlandi árið 2010. Þar var einnig tekið fram að Mandelson „dvaldi að sögn í húsi Epsteins á meðan hann var í fangelsi í júní 2009“.

Þingmenn skipuðu ríkisstjórn Verkamannaflokksins fyrr á þessu ári að birta tugþúsundir tölvupósta, skilaboða og skjala sem lýsa því hvernig Mandelson var metinn fyrir embættið. Búist er við að seinni hluti skjalanna verði gefinn út á næstu vikum.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Greiddu fyrrverandi oddvita 7 milljónir eftir að Framsókn fékk bæjarstjórastólinn
6
Stjórnmál

Greiddu fyrr­ver­andi odd­vita 7 millj­ón­ir eft­ir að Fram­sókn fékk bæj­ar­stjóra­stól­inn

Ný­stofn­að fé­lag Ág­ústs Bjarna Garð­ars­son­ar, fyrr­ver­andi odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafnar­firði, fékk greiðsl­ur fyr­ir ráð­gjafa­störf eft­ir að flokks­bróð­ir hans, Valdi­mar Víð­is­son, tók við sem bæj­ar­stjóri. Ráð­gjafa­störf fyrr­um bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæj­ar, Har­ald­ur Sverris­son, hóf­ust í tíð Rósu Guð­bjarts­dótt­ur, flokks­syst­ur hans.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár