Eimskip ákært vegna förgunar tveggja gámaskipa

Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur gefið út ákæru á Eimskip vegna förg­unar Laxfoss og Goðafoss úti fyrir ströndum Indlands. Skipin voru seld til förg­unar í gegnum milli­lið.

Eimskip ákært vegna förgunar tveggja gámaskipa

Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur gefið út ákæru á hendur Eim­skipa­fé­lagi Íslands og Eimskip Ísland ehf. vegna sölu og förg­unar skip­anna Laxfoss og Goðafoss, sem end­uðu við nið­ur­rif á Alang-strönd á Indlandi.

Málið kom upp þegar fjallað var um það í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik á RÚV. Í kjöl­farið kærði Umhverf­is­stofnun málið til lög­reglu árið 2020, þar sem grunur vakn­aði um brot á reglum um útflutn­ing úrgangs og með­ferð skipa sem fara í nið­ur­rif.

Í ákærunni er þess kraf­ist að félögin verði dæmd til refs­ingar og greiðslu sak­ar­kostn­aðar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Eimskips til kaup­hall­ar­innar. 

Á sama tíma hefur hér­aðs­sak­sókn­ari fellt niður rann­sókn á fram­kvæmda­stjóra rekstr­ar­sviðs Eimskips í tengslum við málið. Með þeirri ákvörðun lýkur mál­inu gagn­vart honum án ákæru. 

Eimskip heldur því fram að félagið hafi fylgt lögum og reglum við sölu skip­anna, sem hafi verið seld til áfram­hald­andi rekstrar en ekki sér­stak­lega til end­ur­vinnslu. Félagið seg­ist munu verja mál sitt fyrir dóm­stólum.

Eimskip seldi skipin Laxfoss og Goðafoss til fyr­ir­tæk­is­ins GMS, sem sér­hæfir sig í að vera milli­liður við förgun skipa, í des­em­ber árið 2019. Þeim var síðan siglt beint úr þjón­ustu Eimskips til nið­ur­rifs á Alang-strönd við Indland í maí ári síðar.

Alang-strönd á Indlandi er ein stærsta skipa­nið­ur­rifs­stöð heims og hefur ítrekað verið gagn­rýnd vegna umhverfis- og örygg­is­mála. 

Á mynd­böndum sem birt voru á sam­fé­lags­miðlum mátti sjá hvar Laxfoss var siglt í strand fljót­lega eftir að heima­höfn þess var færð frá Þórshöfn til Monróvíu. 

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár