Eimskip ákært vegna förgunar tveggja gámaskipa

Hér­aðssak­sókn­ari hef­ur gef­ið út ákæru á Eim­skip vegna förg­un­ar Lax­foss og Goða­foss úti fyr­ir strönd­um Ind­lands. Skip­in voru seld til förg­un­ar í gegn­um milli­lið.

Eimskip ákært vegna förgunar tveggja gámaskipa

Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Eimskipafélagi Íslands og Eimskip Ísland ehf. vegna sölu og förgunar skipanna Laxfoss og Goðafoss, sem enduðu við niðurrif á Alang-strönd á Indlandi.

Málið kom upp þegar fjallað var um það í fréttaskýringaþættinum Kveik á RÚV. Í kjölfarið kærði Umhverfisstofnun málið til lögreglu árið 2020, þar sem grunur vaknaði um brot á reglum um útflutning úrgangs og meðferð skipa sem fara í niðurrif.

Í ákærunni er þess krafist að félögin verði dæmd til refsingar og greiðslu sakarkostnaðar. Þetta kemur fram í tilkynningu Eimskips til kauphallarinnar. 

Á sama tíma hefur héraðssaksóknari fellt niður rannsókn á framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Eimskips í tengslum við málið. Með þeirri ákvörðun lýkur málinu gagnvart honum án ákæru. 

Eimskip heldur því fram að félagið hafi fylgt lögum og reglum við sölu skipanna, sem hafi verið seld til áframhaldandi rekstrar en ekki sérstaklega til endurvinnslu. Félagið segist munu verja mál sitt fyrir dómstólum.

Eimskip seldi skipin Laxfoss og Goðafoss til fyrirtækisins GMS, sem sérhæfir sig í að vera milliliður við förgun skipa, í desember árið 2019. Þeim var síðan siglt beint úr þjónustu Eimskips til niðurrifs á Alang-strönd við Indland í maí ári síðar.

Alang-strönd á Indlandi er ein stærsta skipaniðurrifsstöð heims og hefur ítrekað verið gagnrýnd vegna umhverfis- og öryggismála. 

Á myndböndum sem birt voru á samfélagsmiðlum mátti sjá hvar Laxfoss var siglt í strand fljótlega eftir að heimahöfn þess var færð frá Þórshöfn til Monróvíu. 

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Lífið á Spáni fyrir og eftir Evrópusambandið
3
ViðtalHorft til Evrópu

Líf­ið á Spáni fyr­ir og eft­ir Evr­ópu­sam­band­ið

Fjór­um ár­um áð­ur en Spánn gekk í Evr­ópu­sam­band­ið flutti Hólm­fríð­ur Matth­ías­dótt­ir, út­gáfu­stjóri For­lags­ins, til Barcelona. Hún hef­ur upp­lif­að mikl­ar breyt­ing­ar þar og seg­ir Evr­ópu­sam­band­ið hafa dælt styrkj­um til Spán­ar og það til ým­issa mála, eins og til end­ur­bóta á sam­göng­um og land­bún­aði jafnt sem styrkj­um til menn­ing­ar­mála. Þá hafi katalónsk­an hlot­ið með­byr.

Mest lesið í mánuðinum

Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
2
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár