Morgunblaðið hefur beðist afsökunar á að hafa birt dánartilkynningu manns sem var ekki látinn í blaði sínu í morgun, eftir að hafa verið beitt blekkingum. Maðurinn sem um ræðir heitir Sölvi Guðmundarson og hefur áður stigið fram vegna ásakana á hendur Írisi Helgu Jónatansdóttur, fyrir að beita sig og ólögráða dóttur sína umsáturseinelti. Hann hefur að auki kært Írisi til lögreglu vegna þessa, en að minnsta kosti níu einstaklingar hafa leitað til lögreglu vegna ofsókna og umsáturseineltis henni tengdu og sjö kært hana vegna slíks áreitis.
Sölvi birti í morgun færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann segir frá andlátstilkynningunni sem birtist í Morgunblaðinu.

„Kæru ættingjar og vinir, þið sem hafið verið að senda skilaboð og athuga hvort ég sé í alvöru dáinn, þá er svo alls ekki og er ég sprelllifandi. Svona sjáið þið hvernig fárveik kona og móðir …


















































Athugasemdir