Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ítrekaði í gær að „Kúba væri næst“ um leið og hann vísaði á bug áhyggjum af því að nýlegar hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna myndu kosta hann pólitískan stuðning.
Kommúnistastjórn Kúbu hefur sætt vaxandi þrýstingi frá Trump, sem setti á olíubann í janúar og velti fyrir sér að „taka“ landið.
Á fjárfestingaráðstefnunni FII Priority í Miami, sem er studd af Sádi-Arabíu, sagði Trump að Make America Great Again (MAGA) hreyfing hans vildi „styrk“ og „sigur“ og vísaði til áhlaupsins í janúar þar sem bandarískar hersveitir handtóku Nicolas Maduro, leiðtoga Venesúela.
„Ég byggði upp þennan frábæra her. Ég sagði: „Þið þurfið aldrei að nota hann,“ en stundum verður maður að nota hann,“ sagði Trump.
„Og Kúba er næst, svo þið vitið það. En látið eins og ég hafi ekki sagt það.“
Trump tilgreindi ekki hvað hann hygðist gera varðandi Kúbu og sagði fjölmiðlum að „hunsa þessa yfirlýsingu“ áður en hann endurtók „Kúba er næst“ við hlátur áhorfenda.
Í ræðu sinni í gær kom repúblikaninn og forsetinn einnig með stríðnislega athugasemd þar sem hann kallaði Hormússund „Trump-sund“.
Miguel Diaz-Canel, leiðtogi Kúbu, sagði í síðustu viku að sérhver utanaðkomandi árásaraðili myndi mæta „óbrjótanlegri mótspyrnu“, jafnvel þótt landið hefði tvisvar í síðustu viku orðið fyrir rafmagnsleysi á landsvísu.
Kúba hefur verið í viðskiptabanni Bandaríkjanna frá því skömmu eftir byltingu Fidels Castro árið 1959. Samskiptin hafa batnað á síðustu árum en hafa versnað aftur síðan Trump tók við embætti á sínu öðru kjörtímabili, en forsetinn leitast við að herða tök stjórnar sinnar á Rómönsku Ameríku.
Háttsettur kúbverskur erindreki hafði áður sagt að stjórnvöld í Havana væru reiðubúin að halda áfram viðræðum við stjórnina í Washington, en útilokaði að ræða breytingar á stjórnmálakerfi landsins.
Tveggja seglbáta sem voru hluti af alþjóðlegri skipalest sem flutti lækningavörur, mat, sólarrafhlöður og aðrar vörur til Kúbu er saknað og hafði ekkert hafði spurst til þeirra í gær.













































Athugasemdir