Frjálshyggjumenn úr viðskiptalífinu gefa „þekktum hugsuðum“ sviðið

Stjórn­end­ur Reykja­vík Fin­tech og Bæj­ar­ins Beztu Pyls­ur hafa stofn­að við­burða­fyr­ir­tæki eft­ir að hafa hald­ið fyr­ir­lestra með Jor­d­an Peter­son. Fyrstu við­burð­irn­ir eru með Frosta Sig­ur­jóns­syni um lofts­lags­mál og Bjórkast­inu, hlað­varpi þar sem stjórn­end­ur kenna sig við öfga­hægri og „kyn­þátt­ar­aun­sæi“.

Frjálshyggjumenn úr viðskiptalífinu gefa „þekktum hugsuðum“ sviðið
Ræðumenn Paradigm Gunnlaugur Jónsson flutti áður Jordan Peterson og Gad Saad til Íslands til að halda erindi en nýtt fyrirtæki hans hefur í ár auglýst viðburði með Frosta Sigurjónssyni og Bjórkastinu.

Facebook-síðan „Jordan Peterson á Íslandi“ heitir nú „Paradigm Ísland“ en Paradigm er nýtt viðburðafyrirtæki þeirra sem áður héldu viðburði með kanadíska álitsgjafanum Jordan Peterson á Íslandi. Bak við fyrirtækið standa frjálshyggjumenn úr íslensku viðskiptalífi og er markmiðið með viðburðum með „þekktum hugsuðum“ að efla tjáningarfrelsið að því fram kemur á vefsíðu Paradigm.

Fyrsti viðburður fyrirtækisins var um loftslagsmál með Frosta Sigurjónssyni hagfræðingi en á föstudag stendur það fyrir bjórkvöldi með hlaðvarpinu Bjórkastinu. Einn stjórnenda þess er yfirlýstur „kynþáttaraunhyggjumaður“ sem sagði sig úr stjórn ungliðahreyfingar Miðflokksins eftir að hafa ekki viljað neita því að vera rasisti.

Auglýsing fyrir bjórkvöldAnnar viðburður Paradigm er með hlaðvarpinu Bjórkastinu.

„Heimurinn er að breytast,“ segir á enskum texta á vef Paradigm í þýðingu blaðamanns. „Rótgrónir rammar til að skilja stjórnmál, menningu, tækni og merkingu útskýra ekki lengur veruleikann eins og þeir gerðu áður. Nýjar hugmyndir eru að koma fram en of oft eru þær sundurlausar, …

Kjósa
44
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Já þar sannast það fornkveðna, margur verður af aurum api.
    2
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Við verðum á Íslandi að viðurkenna alvarleik skoðana. Á Íslandi á að ríkja málfrelsi en málfrelsi felur EKKI í sér leyfi til að útbreiða lygar eða skoðanir sem ganga þvert á alla vísindalega þekkingu. Sérstaklega tilheyrir það EKKI málfrelsi að vegsama morð eða þjóðarmorð. Nasistar þýskalands frömdu morð á að minnsta kosti 6 miljónum gyðinga og að auki hundruðum þúsunda af róma, samkynhneigðum og öðrum hópum sem þeir töldu ekki með mönnum. Þeir sem kalla sig nasista án þess að roðna hafa mist alla dómgreind - um siðferði þurfum við ekki að tala.
    4
  • JBÓ
    Jón Brynjólfur Ólafsson skrifaði
    Ja hérna . . . við að lesa þessa grein dettur manni fyrst í hug frásögn þar sem í undirbúningi væri eitthvað nýtt í uppistandi eða einhverju álíka. Uppistand – skemmtun og í boði væri bæjarins beztu pylsur með „kynþáttaraunhyggjugumsi“. Eða bjórkvöld þar sem boðið er upp á að lepja fábjánaglundur (bjór) og tína upp í sig kex mylsnu yfir skemmtiatriðum. Við frekari lestur virðist þessi lýsing / frásögn eiga við eitthvað annað. Minnir e.t.v. frekar á eitthvað sem kemur frá fundarfólki. Fundafólk, sérstaklega háskólamenntað fundafólk, á það til að loka sig af og leggja sig fram um að teikna upp og eða skapa einhvern sýndarveruleika sem hentar þeirra væntingum. Sýndarveruleikin sýnir svo þá sem skapa hann í stórkostlegum hlutverkum. Við svona aðstæður verður fáfræði að miklum vísindum og sannleika. Þetta er bara svona eins og það er. Spurning hvort ekki væri ráð að opna glugga á fundarherberginu og lofta aðeins út, fá inn ferskt loft til að minnka saggann.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Kynlífsverkafólk deilir reynslu sinni: „Glæpavæðing einangrar mann“
1
Úttekt

Kyn­lífs­verka­fólk deil­ir reynslu sinni: „Glæpa­væð­ing ein­angr­ar mann“

Fjór­ir ein­stak­ling­ar sem unn­ið hafa mis­mun­andi kyn­lífs­vinnu á Ís­landi segja þörf á að breyta lög­um og laga við­horf sam­fé­lags­ins. Ein­angr­un fólks sem vinn­ur slíka vinnu sé hættu­leg. Í dag hafa þau kom­ið upp sínu eig­in tengslaneti til að styðja hvert ann­að og passa upp á ör­yggi og mann­rétt­indi kyn­lífs­verka­fólks og þo­lenda vænd­is.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Kynlífsverkafólk deilir reynslu sinni: „Glæpavæðing einangrar mann“
3
Úttekt

Kyn­lífs­verka­fólk deil­ir reynslu sinni: „Glæpa­væð­ing ein­angr­ar mann“

Fjór­ir ein­stak­ling­ar sem unn­ið hafa mis­mun­andi kyn­lífs­vinnu á Ís­landi segja þörf á að breyta lög­um og laga við­horf sam­fé­lags­ins. Ein­angr­un fólks sem vinn­ur slíka vinnu sé hættu­leg. Í dag hafa þau kom­ið upp sínu eig­in tengslaneti til að styðja hvert ann­að og passa upp á ör­yggi og mann­rétt­indi kyn­lífs­verka­fólks og þo­lenda vænd­is.
„Þvættingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðlileg tengsl við erlenda flokka og hugveitur
4
GreiningMAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvætt­ing­ur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðli­leg tengsl við er­lenda flokka og hug­veit­ur

Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son, formað­ur Mið­flokks­ins, sagði um­fjöll­un Heim­ild­ar­inn­ar um tengsl flokks­ins við MAGA-hreyf­ing­una „full­kom­inn þvætt­ing“ en stað­festi fund sinn með Re­públi­kön­um í Gauta­borg. Aðr­ir flokks­menn hafa nú sagt frá tengsl­um við ECR-flokk­inn og Her­ita­ge Foundati­on en eft­ir standa spurn­ing­ar um hver borg­aði.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár