Látinn eftir sprengingu við Sundahöfn

Karl­maður er lát­inn og annar alvar­lega slas­aður eftir að spreng­ing varð í atvinnu­hús­næði við Sunda­höfn í morgun.

Látinn eftir sprengingu við Sundahöfn

Karl­maður á fer­tugs­aldri lést í vinnu­slysi í Korn­görðum í Reykja­vík í morgun þegar spren­ing varð í hús­næði Fóð­ur­blönd­unnar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu lög­regl­unnar.

Tveir aðrir voru fluttir á slysa­deild og er annar þeirra alvar­lega slas­aður. Spreng­ingin varð í morgun og var allt til­tækt við­bragðslið kalla út. 

Í til­kynn­ingu sem Fóð­ur­blandan sendi frá sér fyrr í dag kom fram að talið sé að ryk­spreng­ing hafi orðið í tómum fóð­ur­tanki. Þrír tankar af 45 voru tómir vegna fyr­ir­hug­aðs við­halds. 

Ryk­spreng­ing verður þegar kviknar í fínu ryki þegar svífur í lofti. Það veldur mjög hraðri brennslu og þrýst­ingi svo spreng­ing verði. Þekkt er að slík spreng­ing geti átt sér stað í fóð­ur­tönkum og mjöl­verk­smiðjum. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Svipað slys gerðist í Danmörku fyrir nokkrum árum. Leiðinlegt að það skuli ekki hafa virkað sem víti til varnaðar.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár