Látinn eftir sprengingu við Sundahöfn

Karl­mað­ur er lát­inn og ann­ar al­var­lega slas­að­ur eft­ir að spreng­ing varð í at­vinnu­hús­næði við Sunda­höfn í morg­un.

Látinn eftir sprengingu við Sundahöfn

Karlmaður á fertugsaldri lést í vinnuslysi í Korngörðum í Reykjavík í morgun þegar sprening varð í húsnæði Fóðurblöndunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar.

Tveir aðrir voru fluttir á slysadeild og er annar þeirra alvarlega slasaður. Sprengingin varð í morgun og var allt tiltækt viðbragðslið kalla út. 

Í tilkynningu sem Fóðurblandan sendi frá sér fyrr í dag kom fram að talið sé að ryksprenging hafi orðið í tómum fóðurtanki. Þrír tankar af 45 voru tómir vegna fyrirhugaðs viðhalds. 

Ryksprenging verður þegar kviknar í fínu ryki þegar svífur í lofti. Það veldur mjög hraðri brennslu og þrýstingi svo sprenging verði. Þekkt er að slík sprenging geti átt sér stað í fóðurtönkum og mjölverksmiðjum. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Svipað slys gerðist í Danmörku fyrir nokkrum árum. Leiðinlegt að það skuli ekki hafa virkað sem víti til varnaðar.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
1
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár