Færri nýjar íbúðir klárast og raunverð lækkar

Alls klár­uð­ust 264 íbúðir á land­inu öllu í jan­úar og febr­úar, sam­an­borið við 585 íbúðir á sama tíma­bili árið 2025 og 573 árið 2024.

HMS telur vísbendingar um að byggingaraðilar fresti því að ljúka íbúðum. Töluverður fjöldi nýrra íbúða er enn óseldur á markaði.
HMS telur vís­bend­ingar um að bygg­ing­ar­að­ilar fresti því að ljúka íbúðum. Tölu­verður fjöldi nýrra íbúða er enn óseldur á mark­aði. Mynd: Golli

Mun færri íbúðir voru full­búnar á fyrstu tveimur mán­uðum árs­ins en á sama tíma und­an­farin ár, sam­kvæmt nýjum gögnum frá HMS. Alls klár­uð­ust 264 íbúðir á lands­vísu í jan­úar og febr­úar, sem er veru­leg fækkun frá fyrra ári.

Til sam­an­burðar voru 585 íbúðir full­búnar á sama tíma­bili árið 2025 og 573 árið 2024. Meðaltal áranna 2020 til 2025 er 517 íbúðir, sem und­ir­strikar að upp­haf árs­ins nú er óvenju rólegt hvað nýbygg­ingar varðar. 

HMS bendir þó á að fækk­unin end­ur­spegli ekki endi­lega minni fram­kvæmdir einar og sér. Vís­bend­ingar eru um að bygg­ing­ar­að­ilar fresti því að ljúka íbúðum, meðal ann­ars vegna þess að tölu­verður fjöldi nýrra íbúða er enn óseldur á mark­aði. Því geti þró­unin bæði bent til hæg­ari upp­bygg­ingar og auk­innar var­færni í afhend­ingu nýrra íbúða.

Þessi þróun fellur að stöðu fast­eigna­mark­að­ar­ins um …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár