Borga 35 milljarða í arð af bankastarfsemi

„Telst afar gott,“ segir for­maður banka­ráðs um gríð­ar­legan hagnað af vaxta­mun. Lands­bank­inn græddi 104 millj­ónir á hverjum degi árs­ins.

Borga 35 milljarða í arð af bankastarfsemi
Lilja Björk Ein­ars­dóttir Banka­stjóri Lands­bank­ans skil­aði nið­ur­stöðu í fyrra sem telst góð á mæli­kvaðra nágranna­ríkja Íslands. Mynd: Aðsend

Aðal­fundur Lands­bank­ans sem hald­inn var í nýjum höfðu­stöðvum bank­ans í dag sam­þykkti að greiða sam­tals 34,9 millj­arða króna í arð til hlut­hafa á árinu 2026. 

Hagn­að­ur­inn í fyrra var 38 millj­arðar króna, sem „telst afar gott, bæði í sam­an­burði við inn­lenda banka og banka í nágranna­ríkj­unum,“ eins og Jón Þor­varður Sig­ur­geirs­son, for­maður banka­ráðs, í skýrslu þess á fund­inum.

Arðsemi eigin fjár var 11,6% og kostn­að­ar­hlut­fallið 34,3%.

Bankinn hagn­að­ist fyrst og fremst á vaxta­mun í fyrra. Hreinar vaxta­tekjur á árinu 2025 náum 62,1 millj­arði króna og hreinar þjón­ustu­tekjur 12,6 millj­arðar króna. Í dag til­kynnti pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands um hækkun stýri­vaxta um 0,25% upp í 7,5% eftir langt lækk­un­ar­skeið.

Til að setja hagnað Lands­bank­ans í fyrra í sam­hengi má benda á að hann var 104 millj­ónir króna á dag, 4,3 millj­ónir á hverja klukku­stund árs­ins og 72 þús­und krónur á mín­útu nótt sem dag.

Eigendur Lands­bank­ans eru um það bil 800 tals­ins, þar af er rík­is­sjóður stærsti eig­and­inn með 98,2%

Jón Þor­varður var­aði við áhrifum stríðs­á­taka og mik­illi óvissu á fjár­mála­mörk­uðum, en benti á að íslenska fjár­mála­kerfið stæði traustum fótum. 

„Að mínu mati mark­aði síð­asta ár tíma­mót þegar láns­hæf­is­mat bank­ans hjá S&P var hækkað í apríl úr B-flokki í A-flokk fyrst íslenskra banka í nær 20 ár,“ sagði hann.

Þá boð­aði hann að end­ur­hvarf frá þeirri stefnu að loka úti­búum banka.

„Fyrir fáum árum gekk yfir bylgja þar sem úti­búum banka var lokað í stórum stíl. Lands­bank­inn tók seint þátt í þeirri bylgju og nú virð­ist svo sem hún sé víða að fjara út. Raunar hafa sumir erlendir bankar, til dæmis í Banda­ríkj­unum, boðað fjölgun úti­búa á ný til að vera nær við­skipta­vinum sínum,“ sagði Jón Þor­varður í skýrslu banka­ráðs.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Þessi arðgreiðsla (ef árleg) getur einungis verið sanngjörn ef eigendurnir 800 hafi sett 349 miljarða eða meira inn í fyrirtækið. Það myndi þá jafngilda 10% ársávöxtun sem er það sem hagfræðingar telja vera hæðstu sanngjörnu ávöxtunarkröfuna.
    Það væri nú fróðlegt að vita hversu mikið eigendurnir eru búnir að setja inn í fyrirtækið. Það er að segja hversu mikið hlutafé hefur farið í bankan frá frumfjárfestunum?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár