Seðlabankinn hækkar vexti

Stýri­vext­ir Seðla­banka Ís­lands hækka um 0,25 pró­sentu­stig. Illa hef­ur geng­ið að ná tök­um á verð­bólgu, sem hef­ur hækk­að síð­ustu tvo mán­uði.

Seðlabankinn hækkar vexti
Bankastjóri Ásgeir Jónsson er seðlabankastjóri. Mynd: Golli

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað á fundi sínum í dag að hækka meginvexti bankans um 0,25 prósentustig. Meginvextir, sem eru vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 7,50 prósent .

Þrír nefndarmenn studdu tillöguna en tveir vildu ganga lengra og hækka vexti um 0,5 prósentustig, sem bendir til aukinnar spennu innan nefndarinnar um hversu hart eigi að bregðast við stöðunni.

Samkvæmt yfirlýsingu nefndarinnar benda flestir hagvísar nú til þess að hægt hafi á efnahagsumsvifum. Þrátt fyrir það hefur verðbólga tekið við sér á ný. Þar vegur þungt hækkun opinberra gjalda og áhrif kjarasamningsbundinna launahækkana sem komu til framkvæmda í byrjun árs.

Undirliggjandi verðbólga hefur jafnframt aukist og er nú sú mesta í rúmt ár. Þá hafa verðbólguvæntingar hækkað, sem nefndin telur sérstaklega varhugavert.

Í yfirlýsingunni er einnig bent á að alþjóðlegir þættir hafi aukið verðbólguþrýsting. Miklar hækkanir á olíu og öðrum hrávörum í kjölfar aukinnar spennu við Persaflóa eftir loftárásir Bandaríkjamanna og Ísraels á Íran hafi þegar haft áhrif á markaði og ýtt undir hærri verðbólguvæntingar. Dragist átökin á langinn gæti verðbólga aukist enn frekar.

Nefndin varar einnig við því að háar verðbólguvæntingar geti leitt til þess að endurskoðunarákvæði kjarasamninga verði virkjuð síðar á árinu, sem myndi auka enn frekar verðbólguþrýsting.

Að mati peningastefnunefndar er því nauðsynlegt að herða taumhald peningastefnunnar þrátt fyrir vísbendingar um hægari hagvöxt. Nefndin segist jafnframt reiðubúin til frekari aðgerða ef þurfa þykir til að ná verðbólgu aftur að markmiði.

Fram kemur að næstu ákvarðanir muni áfram ráðast af þróun verðbólgu, verðbólguvæntinga og efnahagsumsvifa.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Funduðu með einni umdeildustu hugveitu heims
5
StjórnmálMAGA-tengingar Miðflokksins

Fund­uðu með einni um­deild­ustu hug­veitu heims

Þing­menn Mið­flokks­ins fund­uðu með Her­ita­ge Foundati­on, hug­veit­unni sem samdi hina um­deildu áætl­un Proj­ect 2025 um end­ur­skipu­lagn­ingu banda­ríska rík­is­ins. Sig­ríð­ur And­er­sen, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, seg­ir erfitt að fá áheyrn, því hafi flokk­ur­inn leit­að til ráð­gjafa Nig­el Fara­ge til þess að tengj­ast banda­rísk­um stjórn­mál­um.

Mest lesið í mánuðinum

Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum
4
RannsóknMAGA-tengingar Miðflokksins

Leynifund­ur Sig­mund­ar Dav­íðs með Re­públi­kön­um

Þrýsti­hóp­ur MAGA-hreyf­ing­ar­inn­ar borg­aði fyr­ir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Re­públi­kana til að hitta Sig­mund Dav­íð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Með­al skipu­leggj­enda voru að­il­ar grun­að­ir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­un­um 2020 fyr­ir Don­ald Trump. Heim­ild­in rek­ur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­að­ar eru af banda­rísk­um auð­mönn­um til Ís­lands.
„Ég var ofbeldisfullur“
6
ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var of­beld­is­full­ur“

Þeg­ar Embla Kristjáns­dótt­ir hóf sam­búð með Niels Thomassen fékk hún að kynn­ast nýrri hlið á mann­in­um sem hún elsk­aði, þar sem stjórn­semi, af­brýði­semi og reiði réðu ríkj­um. Hann gekkst við of­beld­inu, axl­aði ábyrgð og hef­ur unn­ið þrot­laust í sjálf­um sér síð­asta ára­tug. Nú miðl­ar hann reynslu sinni og hvet­ur aðra karl­menn sem glíma við sama vanda að tjá til­finn­ing­ar sín­ar og standa ber­skjald­að­ir.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár