Nýttu Óskarssviðið til að ávarpa heiminn: „Nei við stríði – frjáls Palestína“

Pólitísk ummæli og til­vís­anir í ástand heims­mála settu svip á Ósk­arsverð­launa­há­tíð­ina sem fór fram í Dolby-leik­hús­inu í Hollywood í nótt.

Nýttu Óskarssviðið til að ávarpa heiminn: „Nei við stríði – frjáls Palestína“
Frelsi Ind­verska leik­konan Priyanka Chopra og spænski leik­ar­inn Javier Bardem afhentu verð­launin fyrir bestu alþjóð­legu kvik­mynd­ina á 98. Ósk­arsverð­launa­há­tíð­inni í Dolby-leik­hús­inu í Hollywood í Kali­forníu í nótt. Bardem kall­aði eftir frjálsri Palest­ínu. Mynd: Patrick T. Fallon / AFP

Kynnir Ósk­arsverð­laun­anna, grínist­inn Conan O’Brien, gaf tón­inn strax í upp­hafi. „Ég vara ykkur við, þetta gæti orðið póli­tískt í kvöld,“ sagði hann þegar hann opn­aði athöfn­ina, sem fram fór í nótt. „Ef það veldur ykkur óþæg­indum er önnur Ósk­arsverð­launa­há­tíð í boði Kid Rock á Dave & Buster’s hérna niðri í götu.“

Vísaði hann til sér­stakrar hálf­leiks­sýn­ingar Ofur­skálar­innar sem skipu­lögð var með tón­list­ar­mann­inum Kid Rock vegna óánægju íhalds­manna í Banda­ríkj­unum með tón­list­ar­at­riði Bad Bunny, frá Púertó Ríkó, í úrslita­leik banda­rísku fót­bolta­deild­ar­innar. 

Ósk­arsverð­launa­höfn­inni, sem er stærsta verð­launa­há­tíð kvik­mynda­iðn­að­ar­ins í Banda­ríkj­unum, var sjón­varpað víða um heim og margir sem stigu á svið nýttu tæki­færið til að vísa til þeirrar vax­andi spennu sem er í alþjóða­málum og átaka sem nú eiga sér stað víða í heim­inum.

Meðal þeirra var leik­stjór­inn Paul Thomas Anderson, sem tók við verð­launum fyrir besta hand­rit byggt á áður útgefnu efni. Í þakk­ar­ræðu sinni tengdi hann efni …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Vilborg Norðdahl skrifaði
    Frábært að nota þennan vettvang til að lýsa yfir andstöðu við stríðum, þjóðarmorðum, ofbeldi af öllu tagi við fólk/dýr/náttúru og sóun og umhverfisspjöllum. Veröldin þarf á röddum sem flestra til að ná til margra/allra um þessi mál. Meira svona.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár