Ingibjörg Dögg fékk Blaðamannaverðlaunin fyrir viðtal ársins

Rit­stjóri Heim­ild­ar­innar, Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir, fékk Blaða­manna­verð­laun Íslands fyrir við­tal árs­ins fyrir við­tal við for­seta Íslands.

Ingibjörg Dögg fékk Blaðamannaverðlaunin fyrir viðtal ársins
Verðlaun Ingi­björg Dögg tók við verð­laun­unum í Hafn­ar­húsi í kvöld. Mynd: Golli

Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir, rit­stjóri Heim­ild­ar­innar, hlaut í dag Blaða­manna­verð­launin fyrir við­tal árs­ins. Verð­launin voru veitt við hátíð­lega athöfn í Hafn­ar­húsi í kvöld. 

Verð­launin fékk Ingi­björg fyrir við­tal sitt við Höllu Tóm­as­dóttur, for­seta Íslands. Viðtalið var tekið yfir nokk­urra daga tíma­bil og veitti les­endum nýja sýn á bæði emb­ættið og per­són­una á bak við það. Í við­tal­inu sagði Halla meðal ann­ars frá sárs­auka­fullri reynslu úr barn­æsku og kyn­ferð­is­of­beldi sem hún varð fyrir, og hvernig sú reynsla hefur mótað líf hennar.

Dómnefnd Blaða­manna­verð­laun­anna lagði áherslu á að við­talið bæri með sér mik­il­væg skila­boð til þolenda kyn­ferð­is­of­beldis um að slík reynsla þurfi ekki að skil­greina líf þeirra til fram­tíðar.

Verðlaun voru veitt í fleiri flokkum. Blaða­manna­verð­laun árs­ins hlaut Kjartan Kjart­ans­son hjá Sýn fyrir frétta­skýr­ingar um lofts­lags­mál á Vísi. Þar var sér­stak­lega nefnt hvernig hann útskýrði flókin mál­efni á manna­máli án þess að slaka á fag­legum kröfum. Umfjöllun hans leiddi meðal ann­ars í ljós mis­skiln­ing stjórn­valda á los­un­ar­mark­miðum Íslands í sam­starfi við Evr­ópu­sam­bandið og varð til þess að stjórn­völd end­ur­skoð­uðu mark­mið sín vegna Par­ís­ar­samn­ings­ins.

Verðlaun fyrir umfjöllun árs­ins hlutu Kristín Sig­urð­ar­dóttir og Ingvar Haukur Guð­munds­son hjá RÚV fyrir ítar­lega umfjöllun í þætt­inum Kveik um alvar­lega e. coli-mat­ar­sýk­ingu sem kom upp í leik­skól­anum Mána­garði í Reykja­vík.

Þá hlutu Helgi Seljan og Árni Þór Theo­dórs­son hjá RÚV Blaða­manna­verð­laun fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku árs­ins fyrir umfjöllun í Kveik um umfangs­miklar njósn­a­að­gerðir sem áttu sér stað haustið 2012 að und­ir­lagi Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar. Í umfjöll­un­inni var meðal ann­ars fjallað um hvernig fylgst var með fólki sem hugð­ist leita réttar síns gagn­vart honum.

Blaða­manna­verð­launin eru veitt árlega til að heiðra fram­úr­skar­andi blaða­mennsku á Íslandi og eru veitt í fjórum flokkum. Í dóm­nefnd að þessu sinni sátu Pálmi Jónasson, for­maður, ásamt Arndísi Þor­geirs­dóttur, Bryn­hildi Ólafs­dóttur og Stein­unni Stef­áns­dóttur.

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Vilborg Norðdahl skrifaði
    Til hamingju öll, meira svona.
    1
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Vel gert, til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár