Verðbólgan á niðurleið í Evrópu en uppleið á Íslandi

Mæling á sam­ræmdri vísi­tölu neyslu­verðs sýnir að verð­bólga á evr­ópska efna­hags­svæð­inu er á nið­ur­leið á sama tíma og hún er á upp­leið á Íslandi. Rúmlega tvö­falt hærri verð­bólga er á Íslandi en í Evrópu.

Verðbólgan á niðurleið í Evrópu en uppleið á Íslandi
Hærra Matur og óáfengir drykkir hafa hækkað um 5,9 pró­sent á Íslandi, sam­kvæmt sam­ræmdu mæl­ing­unni, en um 2,9 pró­sent síð­ustu 12 mán­uði á Evrópska efna­hags­svæð­inu. Mynd: Golli

Samræmd vísi­tala neyslu­verðs á Evrópska efna­hags­svæð­inu í jan­úar 2026 lækk­aði um 0,3 pró­sent í jan­úar frá fyrri mán­uði. Á einu ári hefur vísi­talan hækkað um 2 pró­sent. Þetta kemur fram á vef Hag­stof­unnar, sem heldur utan um mæl­ingu og birt­ingu sam­ræmdu vísi­töl­unnar.

Á Íslandi mæld­ist verð­bólga 4,4 pró­sent í jan­úar, sam­kvæmt þess­ari sam­ræmdu aðferð, og hefur hún farið hækk­andi tvo mán­uði í röð. Samkvæmt mæl­ing­unni er það aðeins í Rúmeníu sem verð­bólga mælist meiri en á Íslandi á Evrópska efna­hags­svæð­inu.

Ísland er á pari við Slóvakíu, þar sem verð­bólga mælist 4,3 pró­sent. Annars staðar á Norð­ur­löndum mælist verð­bólga, sam­kvæmt þessum sam­ræmda mæli­kvarða, á bil­inu 0,6 pró­sent – í Danmörku – til 3,5 pró­sent – í Noregi. 

Verð­bólgu­þróun í Evrópu síð­ustu mán­uði er á skjön við Ísland. Verð­bólgan hefur hjaðnað í hverjum mán­uði síð­ustu sex mán­uði og er lægri nú en á sama tíma í fyrra. Á Íslandi hefur hún hins vegar sveifl­ast tölu­vert og mælist nú bæði hærri en fyrir sex mán­uðum og á sama tíma í fyrra. 

Samkvæmt mæl­ing­unni hafa allir und­ir­liðir verð­bólg­unnar hækkað meira á Íslandi en með­al­tal Evrópska efna­hags­svæð­is­ins, ef frá er tal­inn hús­bún­aður, heim­il­is­tæki, og þjón­usta tengd reglu­bundnu við­haldi heim­ila ann­ars vegar og kostn­aður vegna mennt­unar hins vegar. 

Þannig hefur matur og óáfengir drykkir hækkað um 5,9 pró­sent yfir tólf mán­aða tíma­bil á Íslandi en um 2,9 pró­sent að með­al­tali í Evrópu á sama tíma. Húsnæði, vatn, raf­magn og aðrir orku­gjafar, eins og þeir eru flokk­aðir í mæl­ing­unni, hefur hækkað um 6,8 pró­sent á Íslandi en 1,3 pró­sent í Evrópu.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár