Davíð Oddsson látinn

Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, borg­ar­stjóri og rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, lést á heim­ili sínu á sunnu­dag.

Davíð Oddsson látinn
Áhrifa­valdur Davíð var sann­ar­lega áhrifa­valdur í íslensku sam­fé­lagi, sem borg­ar­stjóri, for­sæt­is­ráð­herra, seðla­banka­stjóri og síðar rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins. Mynd: 365/Anton Brink

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins og einn áhrifa­mesti stjórn­mála­maður Íslands á síð­ustu ára­tugum, er lát­inn, 78 ára að aldri. Hann lést á heim­ili sínu í gær. Greint var frá and­lát­inu í Morg­un­blað­inu.

Davíð fædd­ist í Reykja­vík 17. jan­úar 1948 og hóf stjórn­mála­feril sinn snemma. Hann var kjör­inn í borg­ar­stjórn Reykja­víkur árið 1974 og gegndi emb­ætti borg­ar­stjóra frá 1982 til 1991. Síðan var hann for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, kjör­inn á þing og varð for­sæt­is­ráð­herra 1991, emb­ætti sem hann gegndi til 2004. Eftir það var hann utan­rík­is­ráð­herra í eitt ár.

Sem bæði borg­ar­stjóri og for­sæt­is­ráð­herra stóð Davíð fyrir umtals­verðum breyt­ingum á íslensku sam­fé­lagi með einka­væð­ingu rík­is­fyr­ir­tækja og breyt­ingum á umhverfi fyr­ir­tækja í anda frjáls­hyggju Margretar Thatcher.

Árið 2005 var Davíð skip­aður seðla­banka­stjóri og gegndi þeirri stöðu til 2009, í gegnum alls­herjar fjár­mála­hrun. Var hann nefndur á lista banda­ríska Time tíma­rits­ins sem einn 25 ein­stak­linga sem mesta ábyrgð báru á fjár­mála­hrun­inu.

Úr Seðla­bank­anum lá leið hans í rit­stjóra­stól Morg­un­blaðs­ins, þar sem hann starf­aði fram á síð­ustu daga.

Davíð Oddsson var bæði dáður og umdeildur; hann átti stóran þátt í að móta íslenska stjórn­mála- og efna­hags­um­hverfið á seinni hluta 20. aldar og byrjun 21. aldar. 

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona hans er Ástríður Thoraren­sen. Davíð lætur einnig eftir sig son, tengda­dóttur og tvö barna­börn. 

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • LCV
    Lowana Compton Veal skrifaði
    Landhreinsun sem betur fer. Kv.Siggi.
    0
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Davíð var ætíð umdeildur en vinsæll meðal fylgismanna.
    Hann tók sem borgarstjóri við afargóðu búi eftir að vinstri borgarstjórnarmeirihlutinn 1978-1982 ákvað að stækka þjónustusvæði hitaveitunnar verulega. Auðvitað voru himinháar skuldir vegna framkvæmda við stækkunina í Kópavog og áfram í Garðabæ og Hafnarfjörð. Þetta hafði SJálfstæðisflokknum ekki dottið áður í hug. Og þegar notendum hitaveitunnar fjölgaði þá urðu allt í einu gríðarlegar tekjur af henni, skuldirnar hurfu og unnt var að endurnýja Viðeyjarstofu, ráðast i byggingu raðhússins og Perlunnar. Því miður verður að minnast Davíðs fyrir að hafa tekið stundum kolrangar ákvarðanir eins og niðurskurð á þjónustu SVR sem olli því að margir fengu sér bíl til að komast í og úr vinnu. Og ekki má gleyma því þegar átti að leggja hraðbraut eftir Fossvoginum endilöngum. Því var forðað af bæjarstjóranum í Kópavogi. Margt fleira mætti tína til en auðvitað prýddi DO marga góða kosti sem ber að halda til haga.
    Fjölskyldu, sem og vinum og vandamönnum er óskað innilegustu samúðarkveðjur.
    0
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Arfleifðin

    Öðru vísi mér áður brá
    ekkert vekur íhalds kæti.
    Nú er Davíð fallinn frá
    og flokkurinn í þriðja sæti.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár