Bandaríkin og Ísrael ráðast á Íran

„Markmið okkar er að verja banda­rísku þjóð­ina með því að útrýma yfir­vof­andi ógnum frá írönsku stjórn­inni,“ sagði Donald Trump í ávarpi.

Bandaríkin og Ísrael ráðast á Íran

Banda­rísk og ísra­elsk her­lið gerðu sam­hæfðar loft­árásir á skot­mörk í Íran í morgun. Spreng­ingar heyrð­ust í Teheran og í fleiri borgum lands­ins, meðal ann­ars í Isfahan og Karaj, sam­kvæmt írönskum miðlum.

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, stað­festi árás­irnar í ávarpi sem hann birti í formi mynd­bands á Truth Social.

„Markmið okkar er að verja banda­rísku þjóð­ina með því að útrýma yfir­vof­andi ógnum frá írönsku stjórn­inni, sem er ill­vígur hópur af mjög hörðu og hræði­legu fólki. Hættuleg starf­semi hennar stefnir Banda­ríkj­unum, her­mönnum okkar, her­stöðvum okkar erlendis og banda­mönnum okkar um allan heim í beina hættu.“

Umfangsmiklar aðgerðir í undirbúningi

Banda­rískur emb­ætt­is­maður, sem ræddi við New York Times með skil­yrði um nafn­leynd, sagði að árás­irnar væru víð­tæk­ari en aðgerðir sem fram­kvæmdar voru fyrr á árinu. Þá beindust sprengju­árásir að þremur kjarn­orku­tengdum stöðvum í land­inu.

Samkvæmt sama emb­ætt­is­mani eru árás­irnar fram­kvæmdar af orr­ustuflug­vélum sem taka á loft frá her­stöðvum og flug­móð­ur­skipum Banda­ríkj­anna í Mið-Aust­ur­löndum. Ekki liggur fyrir nákvæm­lega hvaða mann­virki voru skot­mörk að þessu sinni, en talið er að her­ferðin geti staðið yfir í nokkra daga.

Árás­irnar hófust snemma morg­uns að stað­ar­tíma, þegar vinnu­vika Írana var að hefj­ast og skólar í fullum gangi.

Misheppnaðar viðræður

Síðustu daga hafa átt sér stað diplómat­ískar til­raunir til að draga úr spennu. Full­trúar Banda­ríkj­anna og Írans fund­uðu í Sviss á fimmtu­dag um fram­tíð kjarn­orku­á­ætl­unar stjórn­valda í Teheran, en fund­inum lauk án sam­komu­lags.

Spenna á svæð­inu hefur farið vax­andi frá því í jan­úar, þegar Trump hét því að styðja mót­mæl­endur í Íran. Mann­rétt­inda­sam­tök hafa sagt að þús­undir hafi látið lífið í aðgerðum íranskra stjórn­valda gegn mót­mæl­endum.

Ísrael undirbýr neyðarráðstafanir

Í Ísrael hafa stjórn­völd lýst yfir neyð­ar­á­standi og gripið til víð­tækra örygg­is­ráð­staf­ana vegna hættu á hefnd­ar­að­gerðum. Varn­ar­mála­ráð­herr­ann, Israel Katz, stað­festi þátt­töku lands­ins í árás­unum í opin­berri yfir­lýs­ingu.

Loft­varna­sírenur heyrð­ust víða um landið og til­kynnt var að skólum og vinnu­stöðum yrði lokað tíma­bundið. Þá var loft­helgi lands­ins tak­mörkuð þar til frek­ari skýr­ing lægi fyrir á við­brögðum Írans.

Ekki hafa borist opin­berar upp­lýs­ingar um mann­fall eða umfang tjóns. Yfirvöld í Teheran hafa enn ekki gefið út heild­stæða yfir­lýs­ingu um aðgerð­irnar, en búist er við að við­brögð þeirra muni marka næstu skref í átök­unum.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár