Verðbólga lækkar á evrusvæðinu

Ólíkt Íslandi er verð­bólga lækk­andi á evru­svæð­inu og mælist þar 1,7% í jan­úar.

Verðbólga lækkar á evrusvæðinu
Verslun Verð á mat og drykk hefur hækkað um 5,6% síð­asta árið á Íslandi en 2,6% á evru­svæð­inu. Mynd: Golli

Verð­bólgan á evru­svæð­inu lækk­aði niður í 1,7% í jan­úar úr 2% mán­uð­inn áður, sam­kvæmt tölum Eurostat yfir sam­ræmda mæl­ingu verð­bólgu. 

Minnst var verð­bólgan í Frakk­landi (0,4%), Danmörku (0,6) og Finn­landi og Ítalíu (1%).

Á sama tíma var verð­bólga í Evr­ópu­sam­band­inu öllu að með­al­tali 2%.

Samkvæmt sömu mæl­ingu er verð­bólga á Íslandi 4,4%, sem er sú mesta á Evrópska efna­hags­svæð­inu fyrir utan Rúmeníu.

Verð­bólga á Íslandi mæld­ist hins vegar 5,2%, sam­kvæmt mæl­ingu Hag­stof­unnar, sem er að nokkru frá­brugðin sam­ræmdu evr­ópsku mæl­ing­unni. Vísitala neyslu­verðs hækk­aði um tæp­lega 1% á einum mán­uði í síð­ustu mæl­ingu íslensku Hag­stof­unnar, sem sam­svarar heils árs verð­bólgu í sumum fram­an­greindum Evr­ópu­löndum.

Helst er það lækkun orku­verðs sem dregur úr verð­bólgu í Evrópu, en á evru­svæð­inu hefur mat­væla­verð hækkað um 2,6% síð­ast­liðið ár en 5,6% á Íslandi.

Aðferð íslensku Hag­stof­unnar mælir meðal ann­ars hús­næð­is­kostnað öðru­vísi en sú sam­ræmda evr­ópska.

Talið er ólík­legt að pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands lækki stýri­vexti sína í næstu viku vegna auk­innar verð­bólgu.

Rík­is­stjórnin ræddi verð­bólgu­vand­ann á fundi sínum í morgun. Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra sagði í sam­tali við frétta­stofu Sýnar von á aðgerðum rík­is­stjórn­ar­innar í nokkrum liðum til að berj­ast gegn verð­bólgu. 

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Mér sýnist að verðbólga hafi alltaf verið til staðar í ýmsum myndum alla tíðfráþvi land byggðist og alveg fram á þennann dag enn aldrei hefur það verið eins erfitt að komast af og einmitt í dag ég er farin að finna fyrir blessaðri verðbólgunni einmitt núna. Húnar farin að glefsa í kálfana á mer vist
    0
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    "Einn helsti munurinn í aðferð Hagstofunnar hefur verið að ákvarðanir um hækkun eða lækkun vaxta getur aukið eða minnkað mælda verðbólgu..."

    HA??? Gæti greinarhöfundur vinsamlegast útskýrt hvað er eiginlega verið að meina með þessu? Eða þá leiðrétt textann ef um er að ræða misskilning eða villu?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár