Verðbólgan lækkar ekki – mælist áfram 5,2 prósent

Verð­bólga síð­ustu tólf mán­aða mælist nú 5,2 pró­sent en án hús­næðis er hún 4,5 pró­sent. Þetta er þvert á spár grein­ing­ar­að­ila sem spáð höfðu lækkun.

Verðbólgan lækkar ekki – mælist áfram 5,2 prósent
Útsölu­lok Hækkunin í febr­úar skýrist að stórum hluta af því að vetr­ar­út­sölum er lokið víða. Föt og skór hækk­uðu um 5,1 pró­sent. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Vísitala neyslu­verðs hækk­aði um 0,94 pró­sent milli jan­úar og febr­úar og stendur nú í 674,6 stigum, sam­kvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Án hús­næðis hækk­aði vísi­talan enn meira, eða um 1,09 pró­sent.

Mestu skiptir þó að verð­bólga síð­ustu tólf mán­aða mælist nú 5,2 pró­sent. Án hús­næðis er hún 4,5 pró­sent. Þetta er þvert á spár grein­ing­ar­að­ila sem höfðu spáð því að verð­bólga myndi strax gefa aðeins eftir.

Útsölulok hækka verð

Hækkunin í febr­úar skýrist að stórum hluta af því að vetr­ar­út­sölum er lokið víða. Föt og skór hækk­uðu um 5,1 pró­sent og hús­bún­aður og heim­il­is­tæki um 5,4 pró­sent.

Matvara og óáfengir drykkir hækk­uðu um 0,9 pró­sent. Einnig hækk­uðu gjöld fyrir vatns­veitu, sorp­hirðu og frá­veitu um 4,3 pró­sent og flug­far­gjöld til útlanda um 6,8 pró­sent.

Á móti lækk­aði elds­neyt­is­verð. Dísil lækk­aði um 5,6 pró­sent og bensín um 6,0 pró­sent.

Rangt eldsneytisverð í janúar

Í til­kynn­ingu Hag­stof­unnar segir að við yfir­ferð gagna hafi komið í ljós að rangt elds­neyt­is­verð hafi verið skráð hjá einum smá­sölu­að­ila í jan­úar. Lækkun bens­íns og dís­ils í febr­úar skýrist að miklu leyti af þeirri leið­rétt­ingu.

„Lækkun á dísel í jan­úar hefði átt að vera 28,1% (áhrif á vísi­tölu -0,30%) og lækkun á bens­íni hefði átt að vera 31,5% (-0,78%),“ segir í til­kynn­ing­unni. Leið­rétt­ingin hefur þó ekki áhrif á áður birtar jan­ú­ar­tölur, að því er Hag­stofan segir.

Vísitala neyslu­verðs í febr­úar gildir til verð­trygg­ingar í apríl.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár