Íslensk-filippeyskt tónlistarkvár með þrjár milljónir hlustenda á Spotify

Ya­elokre, þjóðlaga­verk­efni hins ís­lensk-fil­ipp­eyska Ke­aths Ósk­ar, hef­ur náð gríð­ar­leg­um vin­sæld­um síð­ustu miss­eri.

Íslensk-filippeyskt tónlistarkvár með þrjár milljónir hlustenda á Spotify
Yaelokre Kemur hér fram í New Frontier Theater, Quezon-borg í Filippseyjum, í janúar í fyrra. Mynd: Wikimedia Commons / greenestpotatoes

Íslensk-filippeyskt kvár sem semur og flytur þjóðlagatónlist í kringum eigin söguheim hefur náð miklum alþjóðlegum vinsældum síðustu misserin, að því er virðist án þess að flest fólk hérlendis hafi orðið þess vart. 

Keath Ósk, sem er þekkt undir listamannsnafninu Yaelokre, er með yfir þrjár milljónir hlustenda á tónlistarstreymisveitunni Spotify en vinsælasta lag háns hefur verið spilað yfir 190 milljón sinnum þar. Hán er enn fremur með 1,6 milljón áskrifendur á Youtube og yfir hálf milljón fylgist með háni á Instagram. 

Til samanburðar er hljómsveitin Sigur Rós með 1,3 milljónir hlustenda á mánuði á Spotify, Björk 7,4 milljónir og Kaleo með 13.

Rithöfundurinn Andri Snær Magnason skrifaði á Facebook í gær að hann hefði frétt af tilvist Keaths Óskar nýlega og lýsti yfir furðu yfir því að hægt væri að ná þessum árangri á lítilli eyju án þess að vart hefði orðið við umfjöllun um hann.

Við færsluna skrifar María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar, að þau hafi vitað af Ósk um allnokkurt skeið. „Sam-Kirby sem var agent Ásgeirs og var/er agent Bjarkar í Bandaríkjunum sign-aði hán.“

Yaelokre fór í tónlistarferðalag á síðasta ári um Bretland og Bandaríkin með viðkomu í ýmsum stórborgum Evrópu. Uppselt var á alla tónleikana sem voru yfir þrjátíu talsins. Þá hitaði hán upp fyrir norsku tónlistarkonuna Auroru á tónleikum hennar í Manila, höfuðborg Filippseyja, í fyrra. 

Yaelokre hefur gefið út tónlist frá því snemma árið 2024 og er með plötusamning við Universal. Hán hefur meðal annars samið lög á Tagalog, sem hán sagði í viðtali að hán talaði reiprennandi. 

Færri lög hafa íslenskar tengingar en á Youtube má finna myndskeið sem heitir „Finndu mig í framtíðinni“.

Hán hefur sagt frá því að móðir háns sé söngvari en Ósk er af filippeysku bergi brotið. Á netinu er ekki gefið upp hvað Ósk er gamalt né heldur hverjir foreldrar háns eru. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Efnahagslegur ávinningur „blasir við“
2
EfnahagsmálHorft til Evrópu

Efna­hags­leg­ur ávinn­ing­ur „blas­ir við“

Hver er kostn­að­ur­inn við Evr­ópu­sam­band­ið og hvað mynd­um við fá til baka? Gylfi Magnús­son, pró­fess­or í hag­fræði, fer yf­ir efna­hags­leg áhrif af mögu­legri að­ild að Evr­ópu­sam­band­inu. Áætl­að er að nettófram­lag Ís­lands gæti ver­ið á bil­inu sex til 15 millj­arð­ar á ári, en pró­fess­or­inn tel­ur efna­hags­leg­an ávinn­ing meiri en út­gjöld­in.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
5
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár