Reiknivillu um ákærða erlenda ríkisborgara slegið upp í fyrirsögn

Í Morg­un­blaði dags­ins er því haldið fram í fyr­ir­sögn að útlend­ingar hafi verið nær helm­ingur þeirra sem ákærðir voru fyrir glæpi árið 2024. Talan byggir á röngum útreikn­ingum út frá gögnum ráðu­neyt­is­ins. Ráðu­neytið gerði sömu mis­tök á einum stað í svari við fyr­ir­spurn þing­manns.

Reiknivillu um ákærða erlenda ríkisborgara slegið upp í fyrirsögn

Í nýlegu svari dóms­mála­ráð­herra við fyrir­spurn Diljár Mistar Ein­ars­dóttur, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, kom fram að hlut­fall þeirra erlendu rík­is­borg­ara sem sætt hefðu ákæru á Íslandi vegna almennra hegn­ing­ar­laga­brota árið 2023 væri 34,2 pró­sent. Þetta er þó rangt því út frá töl­unum sem birtar eru í svar­inu má reikna að hlut­fallið sé í raun 25,5 pró­sent. 

Í þessu til­felli hafði fjölda útlend­inga verið deilt með fjölda Íslend­inga – í stað þess að deila fjölda þeirra með heild­ar­fjölda. Gímaldið greindi frá þessu og hafði eftir dóms­mála­ráðu­neyt­inu að um mann­leg mis­tök væri að ræða. Svarið yrði leið­rétt hjá Alþingi, en þar var það birt. 

Þessi mis­tök virð­ast þó ekki ein­skorð­ast við vinnu­brögð ráðu­neyt­is­ins. 

Í frétt Morg­un­blaðs­ins um fyr­ir­spurn Diljár Mistar er því haldið fram að af heild­ar­fjölda ákærðra árið 2024 hafi útlend­ingar verið 43,6 pró­sent. Er þessu haldið fram í fyr­ir­sögn: „Útlend­ingar nær helm­ingur …

Kjósa
46
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Þjóðin á að krefjast afsökunar frá Morgunblaðinu.
    0
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    Hlutfallsreikningur (prósentureikningur) hefur almennt verið erfiður fyrir stjórnmálamenn. Blaðamenn virðast ekki hafa mikla æfingu í þessum reikningum.
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Sennnilega hentar þeim ekki að hafa þetta nákvæmara.
    2
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Mogginn er ekki dagblað heldur trúarrit.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár