Hafnarfjörður greiddi sáttagreiðslu í máli Óskars Steins

Hafn­ar­fjarð­ar­bær aft­ur­kall­aði ráðn­ingu Óskars Steins Ómars­sonar vegna póli­tískra skrifa hans. Umboðs­maður Alþingis sagði með­ferð máls­ins hafa farið á svig við stjórn­sýslu­lög og hefur Hafn­ar­fjarð­ar­bær greitt sátta­greiðslu í mál­inu.

Óskar Steinn Ómarsson
Óskar Steinn Ómarsson Hafn­ar­fjarð­ar­bær féll frá ráðn­ingu Óskars Steins eftir að hann gagn­rýndi meiri­hlut­ann í Hafn­ar­firði. Mynd: Heiða Helgadóttir

Hafn­ar­fjarð­ar­bær hefur þrisvar sinnum á kjör­tíma­bil­inu greitt bætur vegna starfs­manna­mála. Þá hafa verið gerðir 16 starfs­loka­samn­ingar sem ná umfram þriggja mán­aða upp­sagn­ar­frests.

Þetta kemur fram í minn­is­blaði mannauðs­stjóra Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar til bæj­ar­ráðs sem lagt var fram á fundi þess í gær. Tilefnið var fyr­ir­spurn bæj­ar­full­trúa Sam­fylk­ing­ar­innar þar sem óskað var sund­ur­lið­unar á sér­samn­ingum um greiðslu bóta vegna starfs­manna­mála, starfs­loka­samn­ingum og sér­stökum samn­ingum umfram umsamin starfs­kjör við starfs­lok.

Í minn­is­blað­inu kemur fram að sátt­ar­greiðsla hafi verið greidd í jan­úar í kjöl­far álits Umboðs­manns Alþingis. Upphæð sátt­ar­greiðsl­unnar er trún­að­ar­mál sam­kvæmt samn­ingnum.

Þar getur aðeins verið um að ræða eitt álit Umboðs­manns Alþingis sem teng­ist Hafn­ar­fjarð­arbæ á und­an­förnum árum. Umboðs­maður komst að því í des­em­ber að máls­með­ferð Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar hafi ekki verið í sam­ræmi við stjórn­sýslu­lög þegar skóla­stjóri Hraun­valla­stjóra féll frá ráðn­ingu umsækj­and­ans …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár